27.01.1943
Efri deild: 42. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 221 í C-deild Alþingistíðinda. (2775)
120. mál, kynnisferð sveitafólks
Brynjólfur Bjarnason:
Herra forseti. — Þegar um þetta mál var rætt í sambandi við orlofsfrv., var ég fylgjandi þeirri hugmynd, sem í frv. felst. Ég er fylgjandi frv., en hins vegar taldi ég þetta ekki eiga við í því sambandi. Í öðru lagi er allt of losaralega frá þessu gengið og framlagið svo lítið, að þetta kæmi að tiltölulega litlu gagni. Þess vegna hef ég nú ásamt öðrum þm. borið fram brtt. við 1. gr., sem hækkar þetta allverulega, þar sem gert er ráð fyrir, að upphæðin nemi 50 þús. kr., að viðbættri dýrtíðaruppbót. Hér er allmikil hækkun, því að samkv. frv. skilst mér, að upphæðin gæti ekki orðið hærri en 60 þús. Og ég tel, að úr því að verið er að leggja fé til þessa fyrirtækis, megi það varla minna vera en stungið er upp á í þessari brtt. okkar.
Ég mun fylgja frv. þessu, hvort sem brtt. verður samþ. eða ekki. En að hve miklu gagni þetta kemur, fer eftir framkvæmd þess, því að eins og nú er, er þetta losaralegt. Það verður ákveðið í reglugerð, hvernig með skuli farið að öðru leyti. Og það mun koma fram við framkvæmd l., að hve miklu gagni þau koma, og gæti sú reynsla orðið undirstaða undir frekari löggjöf. En ég vænti þess að þingdeildarmenn samþ. þessa brtt., vegna þess að ef þetta á að koma að gagni, þá skil ég varla í, að þýði að hafa upphæðina minni en farið er fram á í þessari breytingartillögu.