11.02.1943
Neðri deild: 55. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 228 í C-deild Alþingistíðinda. (2797)

120. mál, kynnisferð sveitafólks

Emil Jónsson:

Eins og hv. frsm. landbn. skýrði frá, þá skrifuðu sumir nm. undir nál. með fyrirvara og hafa rétt til að flytja brtt. eða fylgja þeim. Ég var einn þeirra nm. Ég vil nú gera grein fyrir þeim fyrirvara.

Því var haldið fram af hv. frsm., að samkomulag hefði verið um það í Ed., að þetta frv. og orlofsfrv. skyldu fylgjast að, þannig að bæði skyldu ná fram að ganga, ef annað næði fram að ganga. Mér er ekki kunnugt um þetta. En annars vil ég segja, að mér finnst allt öðru máli gegna um þetta frv. en orlofsfrv. Með orlofi tel ég tryggt það meginatriði, að fólk fái að komast undir bert loft, það fólk, sem annars vinnur mest inni eða í óhollu lofti. Þessu atriði er t.d. ekki til að dreifa hjá sveitafólkinu, er mestmegnis vinnur úti.

Þá er það annað, að orlofið er beint atriði milli atvinnurekendanna og launþeganna. Með þessu frv. er aftur á móti ákveðið, að veita skuli fé úr ríkissjóði í líku skyni, sem er allt annað mál.

Ég er ekki á móti þessum styrk, en ég er sammála þeim hv. þm., er síðastur talaði, um það, að um hann þurfi að setja ákveðnari reglur en gert er hér í frv.

Ég hafði fyrirvara í því skyni að flytja brtt. í þessa átt. Þessi ákvæði vantar í frv., svo að það nái þeim tilgangi, er ég vil láta það ná, og mun ég flytja brtt. eða vera með till., er gengur í þá átt að kveða nánar á um skiptingu styrksins. Svo vil ég halda því fram, að greinilegur eðlismunur sé á þessum tveimur frv. og engin ástæða til að spyrða þau saman.