12.01.1943
Neðri deild: 30. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 115 í B-deild Alþingistíðinda. (280)

89. mál, innflutningur og gjaldeyrismeðferð

Frsm. (Ásgeir Ásgeirsson):

Ég mun verða við þeim óskum, sem fram hafa komið um að taka aftur til 3. umr. brtt. á þskj. 176, en ég sé enga ástæðu til að taka aftur skrifl. brtt., því að hún er svo einföld, að fljótlegt er að átta sig á henni. Þar er aðeins um orðabreyt. að ræða, sem hv. þm. getur fljótlega kynnt sér betur.