12.01.1943
Neðri deild: 30. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 119 í B-deild Alþingistíðinda. (283)
89. mál, innflutningur og gjaldeyrismeðferð
Eysteinn Jónsson:
Það eru aðeins örfá orð. Við 1. umr. málsins kom fram hjá öllum, sem þá tóku til máls, að frv. stefndi í rétta átt, það ætti að geta gert þessi mál einfaldari og betur samræmd en áður. Ég tók þá fram, og það gerðu fleiri, að mér væri hins vegar ljóst, að árangurinn af þessu færi fyrst og fremst eftir því, hvernig framkvæmdin yrði og sérstaklega, Hvernig eða hverjir yrðu valdir í viðskiptaráð og hvernig sjónarmið þeir hefðu. Þetta er meginatriðið. Það kom strax fram af hálfu hæstv. stj., að hún lítur svo á, að hún eigi fyrst og fremst að skipa í ráðið, og má segja, að það sé eðlilegt sjónarmið, þar sem hún. ber ábyrgðina á framkvæmdunum. Hins vegar hefur þ. vaxið mjög í augum að veita hæstv. stj. jafnmikið vald og hún fengi með því að skipa ein í ráðið. Ég hafði gert mér hugmynd um að fara millileið, þannig að hæstv. stj. hefði samvinnu við Alþ. um skipun ráðsins, þó að hún hefði vald til að skipa það. Enn sem komið er hefur ekki bólað á þessu, og eftir því sem ég hef heyrt, mun ekki um von á slíkri samvinnu vera að ræða. Ég tel það miður farið, að þessi leið skuli ekki hafa verið valin, en um leið og ég skýri frá, að mér eru þetta vonbrigði, vil ég lýsa yfir, að ég mun ekki láta þetta verða til þess, að ég snúist gegn frv. Ég mun vera með því að veita hæstv. stj. þessa heimild, þó að ég vildi taka þetta fram.