01.03.1943
Efri deild: 66. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 248 í C-deild Alþingistíðinda. (2836)
120. mál, kynnisferð sveitafólks
Hermann Jónasson:
Herra forseti. — Það er í raun og veru þýðingarlaust að ræða þetta mál, þar sem það mun hafa verið ákveðið fyrirfram, hvernig með það skyldi farið. Það, sem ég ætla að segja hér viðvíkjandi því, sem hv. þm. Barð. var að tala um breyt. á frv., að frv. hefði verið gerbreytt og margt strikað út, en annað sett í staðinn, þá hefur það ekki við rök að styðjast. Annars ætla ég ekki að svara þessum hv. þm. Hann er kominn í sinn gamla ham og farinn að ráðast á umbjóðendur mína þarna norður á kjálkanum, sem ég held, að gætu mætt honum á flestum sviðum. Hann er nú alveg búinn að missa vald á sjálfum sér.
Hv. 6. þm. Reykv. er nú kominn úr fræðimennskuham sínum og hefur tekið á sig ærið pólitískan blæ, eins og oft vill brenna við um fræðimennsku hans, sem ég skal þó ekki lasta á neinn hátt að öðru leyti.
Ég efast um, að nokkur þm. eða nokkur fræðimaður haldi því fram, að þær gerbreytingar, sem hafa verið gerðar á frv. hér síðustu 10–20 árin, hafi ekki margar verið meiri en þær breyt., sem hafa nú verið gerðar á þessu frv., án þess að þau frv. hafi verið látin sæta þeirri meðferð, sem nú á að taka upp gagnvart þessu frv. Það á nú að taka upp alveg nýja aðferð, sem er gagnstæð þeim aðferðum og reglum, sem hér hafa verið notaðar síðustu 10–20 árin. Ef þetta er ekki ástæða til þess að láta sig gruna, að hér sé verið að gera tilraun til þess að eyða málinu, þá veit ég ekki, hvað á að kalla það, en úrslit þessarar deilu munu sýna það, hve mikil heilindi hafa staðið bak við fylgi manna við þetta mál.
Ég vil að lokum þakka hæstv. forseta fyrir þá þolinmæði, sem hann hefur sýnt, og þá lipurð að leyfa mér að koma með þessar aths. mínar, en þær munu nú ekki verða fleiri.