10.02.1943
Neðri deild: 54. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 270 í C-deild Alþingistíðinda. (2905)

17. mál, verðlagsuppbót á laun embættismanna og annarra starfsmanna ríkisins

Einar Olgeirsson:

Ég er hræddur um, að hv. þm. A.-Sk. hafi getið sér heldur frítt til um hvatir okkar í fjhn. til að vera móti frv. Ég efa ekki áhuga hans í málinu, en hann hefur valið sér nokkuð erfiða leið að ætla að koma þessu frv. gegnum 6. umr. í stað þess að koma með brtt., eina eða tvær, við fjárl, og fá samþ. við 2. eða 3. umr. Það er enn hægt, þótt frv. standi. Þessi hv. þm. gekk mjög vel fram í að fella till. við 2. umr. fjárl. m.a. um framlag til barnaskólabygginga. Nú ráðlegg ég honum að gera tafarlaust brtt. í svipaða átt og frv. og bera fram við 13. gr. fjárl., því að 3 kortér eru þangað til öllum brtt. á að vera skilað, — og ganga svo fram í því að fá hana samþ. Til þess fengi hann fylgi margra þm., en samþ. þessa frv. tel ég ófæra leið. Brtt. kæmi ekki að sök, þótt svo færi, að frv. yrði samþ.