10.02.1943
Neðri deild: 54. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 270 í C-deild Alþingistíðinda. (2906)

17. mál, verðlagsuppbót á laun embættismanna og annarra starfsmanna ríkisins

Frsm. meiri hl. (Ingólfur Jónsson):

Hv. þm. A.-Sk. þótti lítið að greiða 150 kr. þóknun fyrir ferju á Iðu t.d. Hann gætti þess ekki, að þessar 150 kr. eru ekki laun, heldur styrkur til ferjuhalds, en aðallaunin eiga að vera ferjutollurinn. Ég geri ráð fyrir, að þeir tollar hafi hækkað eins og annað. Styrkurinn er aðeins sem viðurkenning á starfinu.

Hv. þm. veik að því hugarfari, sem einhverjir menn kynnu að ala í brjósti, með því að þeir vilja lækka laun hjá vegavinnumönnum. Þetta kemur að vísu ekki því máli við, sem hér er til umræðu og er órannsakað. En mér kæmi ekki á óvart, þótt að því kæmi fyrr en síðar, að lækka verði kaup almennt. Ég held þessi hv. þm. hljóti að gera sér ljóst, að að því kunni að reka, og hann muni geta orðið því fylgjandi sem hverri annarri nauðsyn. En ég býst ekki við, að þeir séu margir, sem vilja byrja á vegavinnumönnum. Hann taldi rétt, að þeir, sem bæru fyrir brjósti hag ríkissjóðs í þessu máli, hugsuðu heldur um aðrar stærri fjárhæðir, gættu bjálkans í sínu eigin auga. Hér er ekkert sérstakt um fjárhæðir að ræða, heldur eðlilegar meginreglur. Frv. verður að telja flutt alveg að óþörfu, eftir að vegamálastjóri hefur lagt til við ríkisstj. að hækka þessi framlög, og gert er ráð fyrir, að styrkur til ferjuhalds verði í fjárl. hækkaður samkv. vísitölu og styrkur til gistingarstaða hækkaður um 100%, og jafnframt ber að gæta þess, að þessi aukastörf hafa viðkomandi menn eingöngu í hjáverkum, svo að þeir mega heita vel haldnir með þessa uppbót. Það var villandi hjá þm., að kjör þeirra hefðu ekkert verið bætt enn. Vegamálastjóri hefur upplýst, að greidd muni 50% uppbót á alla styrkina á árinu 1942, og á þskj. 304 má sjá, að grunnstyrkur á Hrafnfjarðareyri hefur hækkað úr 200 kr. 1941 í 300 kr. 1942 og í Bakkaseli úr 300 kr. 1941 í 440 kr. 1942. Ég er ekki að telja neitt eftir þessum mönnum, eins og menn gátu heyrt af framsöguræðu minni. En ég hef góða samvizku af að fella þetta frv., því að ljóst er, að þessir menn fá án þess kjarabætur, eftir því sem þeim ber og þörf er á.