10.02.1943
Neðri deild: 54. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 271 í C-deild Alþingistíðinda. (2908)

17. mál, verðlagsuppbót á laun embættismanna og annarra starfsmanna ríkisins

Páll Zóphóníasson:

Herra forseti. — Samanborið við það, sem áður var, má segja, að styrkirnir séu allverulega hækkaðir í fjárlagafrv., og má þó vera, að fylgi fengist til að hækka þá eitthvað meira með brtt. við 3. umr. fjárl. Skal ég ekki fara langt út í það. En mér virðist heppilegast, að þessu frv. verði vísað til ríkisstj., og geri það, herra forseti, að tillögu minni, í fullu trausti þess, að í fjárl. fáist greidd sú styrkupphæð, sem vel megi við una.