05.01.1943
Efri deild: 24. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 274 í C-deild Alþingistíðinda. (2917)
60. mál, sjúkrahús o.fl.
Haraldur Guðmundsson:
Ég tók eftir því, að hv. síðasti ræðumaður lagði til, að frv. þessu yrði vísað til fjhn. Ég vil leyfa mér að benda á, að venjan hefur verið sú, að slíkum málum sem þessu hefur verið vísað til allshn. (StgrA: Ég leit á þetta sem fjárhagsatriði, en skiptir eigi máli mín vegna, í hvora n. það fer). En hvor n., sem fær þetta frv. til athugunar, þá vil ég benda henni á, hvort ekki sé tiltækilegt og réttara að gera viðtækari breyt. á l. um sjúkrahús en hér er farið fram á, að gerðar verði með frv. þessu.
Ég get fallizt á framsöguræðu hv. flm., en vil aðeins geta þess til frekari skýringar, að heimild er fyrir því, að sjúkrahús geti tekið hærri daggjöld fyrir utansveitarsjúklinga en innansveitar. Sá munur er það hár, að ekki á að verða rekstrarhalli á dvöl utansveitarsjúklinga yfirleitt. — Svo mikið er víst, að þessi heimild er til.
Ég hygg, að það sé mjög athugandi, hvort ekki eigi að setja l. um sjúkrahúsbyggingar. Um það eru engin lög, en aftur á móti hafa mörg bæjarfélög reist stór og myndarleg sjúkrahús, þó að af vanefnum væri. En í Rvík er þessu svo háttað, að bærinn hefur ekki látið reisa neitt sjúkrahús, en ríkissjóður hefur aftur á móti lagt fram stórfé til sjúkrahúsa hér. En í stað þess hafa bæði einstaklingar og katólska reglan byggt hér sjúkrahús. Mér virðist það sem sagt athugandi, hvort ekki sé rétt að skylda bæina til að reisa sjúkrahús í einhverju hlutfalli við tölu íbúanna og þá um leið, að athuguð sé þátttaka ríkissjóðs í þeim kostnaði, er af því leiðir. Ég hygg, að þessum málum verði bezt komið með því, að sett yrði almenn löggjöf um þessi mál.
Erlendis og á Norðurlöndum fer meginstyrkur sjúkrahúsa í það að lækka og hafa lægri daggjöld sjúkrahúsa en sem svarar kostnaði og er þá greitt til sjúkrasamlaga.
Enn fremur vil ég benda á, að mér finnst orðalag 1. gr. vera dálítið hæpið. Eftir því virðist, að hvenær sem bær eða sveit vill reisa sjúkrahús, þá sé ríkið skyldugt að leggja fram stofnkostnaðinn að hálfu leyti, ef trúnaðarmenn ríkisins samþykkja uppdrátt og annað þess háttar. Og mér virðist mega gera ráð fyrir því, að talsvert af rekstri sjúkrahúsa geti eftir þessu frv. færzt yfir á ríkið. Þessu vil ég beina til n. þeirrar, er fær þetta frv. til meðferðar, og enn fremur leggja áherzlu á, að hún athugi, hvort ekki sé tiltækilegt, að gerðar séu enn frekari breyt. á l. um sjúkrahús og um þau yrði sett almenn löggjöf.