08.02.1943
Efri deild: 50. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 282 í C-deild Alþingistíðinda. (2926)

60. mál, sjúkrahús o.fl.

Haraldur Guðmundsson:

Herra forseti. — En get fyrir mitt leyti fallizt á að bíða til 3. umr. með að koma með brtt., og mætti athuga það á milli umr., hvort ekki gæti orðið samkomulag um þær brtt.

Út af því, sem hv. frsm. sagði um föst ákvæði um framlög til hafnarmannvirkja, sem nú eru upp tekin, þá vil ég taka fram, að það er nokkuð rétt, en það er engan veginn sambærilegt við það, sem ákveðið er í 1. gr. þessa frv. Ég hef aflað mér upplýsinga hjá vitamálastjóra um þetta. Rvík er þar sérstæð, hún hefur ekki fengið neinn styrk til hafnargerðar, nema 100 200 þús. kr. Að öðru leyti hygg ég, að í hafnarl. kaupstaðanna allra sé það ákveðið, að ríkissjóðsframlagið sé 1/3 hluti kostnaðar. Þó mun vera undantekning frá þessu viðkomandi Neskaupstað. Hann hefur lent í flokki með stærri þorpum og fær 2/5 kostnaðar úr ríkissjóði. Þá eru lendingarbætur og aðrar slíkar fyrirgreiðslur á smærri stöðum, sem venjulega eru styrktar með helmingi stofnkostnaðar. Þannig er bersýnilegt, að styrkjum úr ríkissjóði er mismunað talsvert verulega, eftir því hvernig til hagar á hverjum einstökum stað. Þess vegna er ég ekki sannfærður um, að rétt sé að hækka framlag ríkissjóðs upp í helming stofnkostnaðar og láta hann vera jafnan því, sem viðkomandi bæjar- eða sveitarfélög leggja fram. Ég er ekki viss um, að það sé rétt í öllum tilfellum.

Um 1-lið 1. gr. er ekki ástæða til að hafa mörg orð. Ég álít eðlilegt, að haft sé það fyrirkomulag, sem haft er nú á því atriði, að því fé, sem veitt er til þessa, sé úthlutað af landlækni eftir þar til settum reglum í hverju tilfelli. Því að það verður að setja svo nákvæmar reglur um þetta í l., að ekki reynist gallar á því fyrirkomulagi í framkvæmdinni.

Ég er ekki á móti því, að frv. gangi til 3. umr. og athugað verði milli umr., hvort hægt sé að gera brtt. við það, sem samkomulag gæti orðið um.