08.02.1943
Efri deild: 50. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 284 í C-deild Alþingistíðinda. (2928)
60. mál, sjúkrahús o.fl.
Forsrh. (Björn Þórðarson):
Herra forseti. Ég ætla ekki að tala margt í þessu máli, enda hefur flest komið fram hér hjá hv. þdm. af því, sem ég vildi hafa sagt í upphafi um þetta mál. Það var tekið fram þegar í byrjun af hv. 3. landsk. þm. (HG), hversu réttilega hv. allshn. hefði komizt að niðurstöðu sinni í sínu nál. Og ég vil taka undir það og enn fleinur þau ummæli, sem hv. 1. þm. Eyf. (BSt) lét nú falla í sömu átt. Það er, býst ég við, meginregla hér í hæstv. Alþ., þegar þingn. leitar álits ráðunauta ríkisstj., og það æðstu ráðunauta, að hún segi að einhverju leyti til þess, hvað þessir ráðunautar leggi til í þessu máli, sem þeir eru spurðir um. Og það er svo bert af nál., að enginn maður, sem les það, getur skilið það öðruvísi en svo, að n. hafi að niðurstöðu til verið á sama máli og landlæknir. En nú er það upplýst, að hans álit gengur gegn n.
Ég skal ekki segja neitt um það, Imort álitið er á fastari rökum byggt, álit hv. flm. og skoðana hans, sem hv. n. fellst alveg á, eða skoðun landlæknis. En ég vil taka undir þau ummæli hv. 1. þm. Eyf., að hv. allshn. vildi nú gefa út framhaldsnál. í tilefni af þeim ummælum og umr., sem farið hafa fram nú hér í hv. d. Það er m.a. eitt atriði, sem ég tel æskilegt, að hv. n. hefði skýrt nokkuð betur, þar sem í b-lið 1. gr. er talað um, að sjúkrahús sé sótt „að verulegu leyti“ af sjúklingum, sem ekki eiga heimili á viðkomandi sveitar-, bæjar- eða sýslufélagi. Hver á að hafa úrskurðarvald um það að ákveða í hverju tilfellni, hvað er „að verulegu leyti“ í þessu efni? Væri ekki betra að tiltaka það með ákveðnari orðum, hvenær sjúkrahús eigi að hafa rétt til dagpeninga úr ríkissjóði fyrir utansveitarsjúklinga?
Enn fremur hefði ég kunnað betur við, að í blið 1. gr. hefði ekki á öðrum staðnum í gr. staðið: „eiga heima“, en hinum: „eiga lögheimili“. Ég hefði viljað hafa sama orðið á báðum stöðum, því að það er ekki alveg ótvírætt, hvort það er sama að eiga heimili og að eiga lögheimili á einhverjum stað. Þetta veit ég, að þeir 4 lögfræðingar, sem eiga sæti í hv. d., munu geta skrifað undir.
Að öðru leyti skal ég ekki orðlengja frekar um málið. En ég vildi taka undir ósk um það, að hv. n. vildi fyrir 3. umr. koma með framhaldsnál. í framhaldi af því, sem hér hefur verið sagt.