08.02.1943
Efri deild: 50. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 286 í C-deild Alþingistíðinda. (2930)

60. mál, sjúkrahús o.fl.

Frsm. (Guðmundur Í. Guðmundsson):

Herra forseti. – Það hafa nú orðið nokkrar umr. um þetta frv., sem að verulegu leyti hafa snúizt um það, að allshn. hafi ekki gengið frá málinu eins og skyldi, og sérstaklega hefur n. verið átalin fyrir það að hafa ekki birt bréf landlæknis um þetta mál. Hæstv. forsrh. gat þess og hér áðan, að þannig hefði verið frá málinu gengið af allshn., að ástæða væri til að ætla, að landlæknir legði ekki til, að frv. verði samþ. Ég held, að ég hafi tekið það glögglega fram í ræðu minni áðan, að tillaga landlæknis í þessu bréfi var, að frv. yrði fellt, og ég minntist á rök, sem hann færði fyrir þessari till. Ég þóttist líka hafa bent á rök, sem n. taldi sig hafa á móti ályktunum landlæknis. En mér er ekki kunnugt um, að það sé venja á Alþ. að birta öll álit og álit,gerðir, sem einstakar n. fá um frv. þau, sem þær senda til umsagnar vissum aðilum. Ég held, að það sé miklu frekar venja, að þetta sé ekki gert. Ég hef orðið var við þó nokkuð mörg mál hér, og þau allstór, þar sem ekki hafa verið birtar álitsgerðir, sem n. hafa borizt, og það þó að um ýtarlegar og margar álitsgerðir hafi verið að ræða. Það má finna mörg mál, þar sem þetta hefur verið gert, en ég held, að hin málin séu fleiri, þar sem þetta hefur ekki verið gert. Ég vil minnast á frv. til l. um breyt. á fiskveiðasjóðsl., sem sjútvn. Nd. höfðu borizt þrjár ýtarlegar umsagnir um. Sjútvn. birti þær ekki, að því er ég bezt veit, og málið hefur síðan komið til umr. í sjútvn. hér í hv. d. Hv. þm. Barð. (GJ ) gekk þar frá nál., og ég hef ekki komið auga á, að hann hafi tekið upp þessar umsagnir í nál.

Og um frv. til l. um stækkun lögsagnarumdæmis Rvíkur lágu fyrir 4 umsagnir. Meiri hl. n., sem um það mál fjallaði, sá ekki ástæðu til að taka í nál. neitt af þessum álitum. Svona hygg ég, að mætti lengi telja. Mér hefur skilizt, að n., þegar þær fá slík álit, reyni að gera sér grein fyrir því, hvort umsagnirnar séu þannig, að ástæða sé til að birta þær í nál. eða ekki. Við athuguðum þetta í allshn. og sáum ekki ástæðu til að birta þessa umsögn landlæknis, enda hefur hún legið hér frammi, hv. þm. til sýnis. En það er síður en svo, að ég og aðrir, sem viljum, að þetta frv. nái fram að ganga, höfum nokkuð á móti því, að þessi umsögn komi fyrir sjónir hv. þm. í þskj. Við getum þvert á móti fallizt á það, að þegar álit og umsögn landlæknis eru virkilega krufin til mergjar, þá komi í ljós, að frv. það, sem hér liggur fyrir, er nauðsynlegt og þarf að ná fram að ganga.

Hv. þm. Barð. minntist og á það, að allshn. hefði vanrækt að fá upplýsingar um það, hve mikil fjárhæð það mundi vera, sem greiða þyrfti úr ríkissjóði í styrk, ef b-liður 1. gr. frv. yrði samþ. Þetta er rétt, að upplýsinga um þetta hefur ekki verið leitað, enda held ég, ef ætti að fá upplýsingar um þetta, þá mundi það taka mjög langan tíma og tef ja þannig fyrir málinu, að ekki vinnist tími til að afgreiða það á þessu þingi nú. Sjúkrahús á landinu eru sjálfsagt yfirleitt ekki undir það búin að gefa upplýsingar um þetta án þess að leggja í það vinnu að ná tölunum upp um þetta. Auk þess virðist mér þetta ekkert atriði vera í málinu. Mér virðist það, hvort þessar upphæðir eru stórar eða litlar, ekki skipta því máli, að það eigi að hafa áhrif á það, hvort þessi liður verður samþ. eða ekki. Aðalatriðið er, að sveitarfélög víðs vegar um landið þurfa að greiða styrki til sjúkrahúsanna fyrir legu utansveitarmanna á sjúkrahúsunum. Þetta er alveg óþolandi fyrirkomulag, og þessu þarf að breyta. Og það er ekkert atriði í málinu, hvort þetta er stór eða lítil upphæð, sem kemur þarna á ríkissjóðinn að greiða í þessu skyni. Og ef þar gæti verið um verulega upphæð að ræða, þá álit ég, að það sé enn frekari ástæða til fyrir ríkið að hlaupa þar undir baggann. Því verður ekki haldið fram af neinni sanngirni, að einstökum sveitarfélögum verði gert að greiða verulegar fjárupphæðir í styrki til sjúkrahúsanna vegna utansveitarmanna, sem liggja á sjúkrahúsunum. Sú upphæð, sem fyrir þá þarf að greiða, á skilyrðislaust að koma úr ríkissjóði án tillits til þess, hvort hún er stór eða smá.

Þá minntist hv. þm. Barð. á það, að það þyrfti að breyta nokkuð 1. gr. frv. til þess að tilgangi hennar yrði náð. Fyrst og fremst þyrfti að taka upp ákveðin fyrirmæli um það, að ríkið þyrfti að greiða kostnað vegna byggingar sjúkrahúsa. Svo megi ekki heldur vera í frv. ákvæði um það, skildist mér, að heilbrigðisstjórn þyrfti að samþ. uppdrætti að sjúkrahúsum til þess að styrkir fengjust til þeirra. Ég get ekki fallizt á þessa skoðun hv. þm. Barð. Tilgangurinn með þessari gr. er sá einn, að það á að slá því föstu, í hvaða hlutfalli byggingarkostnaður sjúkrahúsa skuli skiptast á ríkissjóð annars vegar og bæjar- og sveitarfélögin hins vegar. Tilgangur gr. er sá einn að slá þessum hlutföllum föstum. Það er hins vegar fjárlagaákvæði, hvenær fé skuli veitt úr ríkissjóði til byggingar sjúkrahúsa. Og þessum tilgangi er náð með gr., þó að ekki séu í henni ákvæði um ákveðnar fjárgreiðslur úr ríkissjóði. Það er og venja að hafa slík ákvæði í l., að ekki megi ráðast í byggingar sjúkrahúsa, nema uppdrættir séu samþykktir af fulltrúa ríkisins. Þetta gildir og um hafnarmannvirki og hvað annað hliðstætt, og það væri ástæðulaust að láta nokkuð sérstakt gilda í þessum efnum, hvað viðkemur sjúkrahúsum. Enda er eðlilegt, að heilbrigðisstj. hafi fullkomið eftirlit með því, að sjúkrahúsin séu þannig byggð, að þau fullnægi þeim kröfum, sem heilbrigðisstj. af eðlilegum ástæðum setur fram.

Ég get því ekki betur séð en a-liður 1. gr. sé þannig, að hann nái þeim tilgangi, sem honum er af hálfu hv. flm. ætlað að ná. En ég get hins vegar fullkomlega fallizt á, að áður en málið kemur til 3. umr., verði umsögn landlæknis um það birt. Og ég sem frsm. allshn. mun að sjálfsögðu hlutast til um, að svo verði gert.