16.02.1943
Efri deild: 57. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 291 í C-deild Alþingistíðinda. (2938)

60. mál, sjúkrahús o.fl.

Gísli Jónsson:

Ég er ekki alveg sammála hv. 4. landsk. um það, að ekki beri mjög mikið á milli hans og landlæknis. Samkv. bréfinu setur landlæknir sig mjög á móti því, að frv. verði samþ., en flm. gerir allt til þess að fá það samþ. Það ber því mjög mikið á milli hjá þeim. Þetta mál er þannig til orðið, að árið 1933 voru sett um þetta ákveðin l., og það eitt út af fyrir sig að breyta þeim l. öðruvísi heldur en í samráði við þann mann, sem hefur mest um þetta að segja, landlækni, tel ég vera mjög varhugavert. Það má benda á þau ummæli landlæknis, sem fram koma í bréfi hans, að sumt af því, sem fram kemur í þessu frv., sé alveg vitagagnslaust.

Ég hefði óskað eftir, að flm. næði meira og betra samræmi um breyt. á þessum l. við landlækni og heilbrigðisstj., svo að fullkomið samræmi fengist um þessi mál, eða hann féllist á að vísa því frá með rökst. dagskrá og undirbúa það betur fyrir næsta þing. Ég fellst á mörg þau rök, sem koma fram hjá landlækni í bréfi hans. Það má t.d. til sanns vegar færa, að ekki sé rétt, óhjákvæmilegt eða réttlátt, að öll sjúkrahús á landinu hafi sama styrk. Ég veit, að hann hefur mikið til síns máls. Það þarf ekki að vera gengið á rétt eins sjúkrahúss, þó að eitt þurfi frekar aðstoðar en annað til þess að koma upp sjúkrahúsi. Því getur ráðið mismunandi aðstaða, fólksfjöldi o.fl., en það er það, sem landlæknir. bendir á í bréfi sínu, og hann telur óheppilegt að binda allt við sömu upphæðina. Nú er vitanlegt, að úti á landi eru þessir styrkir ekki eingöngu til sjúkrahúsa, heldur einnig til læknisbústaða, þannig að reistar hafa verið í þeim sjúkrastofur. Það hefur verið álitið, að læknirinn geti ekki sjálfur staðið undir húsaleigunni, og því verði héraðið að hlaupa undir bagga og sjá honum fyrir bústað og bera kostnaðinn af því. Þessa þarf t.d. ekki við í kaupstöðum. Landlæknir segir líka, að erfitt sé að finna slíkum styrkveitingum algilt og réttlátt frambúðarform, og ég býst við, að það sé rétt, að þetta sé ekki hægt, svo það er út í bláinn að ákveða þetta form., nema með því að heilbrigðisstj. hafi hönd í lagga með. Það er ekki upplýst um, hve mikið fjárhagsatriði þetta er. Það er eins og það sé algert aukaatriði fyrir þessa menn, en fyrir mér er það ekki aukaatriði. Það má ekki reikna með, að tímarnir séu alltaf eins og nú, og verður að minnast þess, að verið er að binda ríkissjóði byrðar fram í framtíðina. Það er það, sem hv. dm. þurfa að gera upp við sig, þegar þeir greiða atkv. um þetta mál, hvað mikið fjárhagslegt atriði það er fyrir ríkissjóðinn. Landlæknir segir: Niðurstaða mín verður því sú, að ekki sé rétt að gera frumvarp þetta að lögum, og ég verð að segja, að hann færir ákaflega mikil rök fyrir því.

Ég vildi spyrja hv. flm., hvort ekki sé rétt að fresta umr. um málið og fá betra samræmi í það, ef ekki er annað en orðalag, sem á milli ber, og leggja það síðar fyrir d. til úrskurðar. Ef hún gæti há ekki sætt sig við það, kæmi til að vísa því frá með rökst. dagskrá. Ég get ekki fallizt á að greiða atkv. með málinu eins og það er og vil benda á, að flm. hefur fallizt á a.m.k. eina orðalagsbreyt. frá landlækni, og það gæti skeð, að það yrðu fleiri.