16.02.1943
Efri deild: 57. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 293 í C-deild Alþingistíðinda. (2940)

60. mál, sjúkrahús o.fl.

Hermann Jónasson:

Herra forseti. — Ég fylgi þessu máli í n. og tel það ekki ósanngjarnt og eðlilegt, að ríkið greiði hálfan stofnkostnað við byggingu sjúkrahúsa, því að reynslan hefur sýnt það, að sjúkrahúsin sækja utanhéraðsmenn nokkurn veginn í sama mæli og innanhéraðsmenn, og þess vegna er ekki nema eðlilegt, að ríkið taki að nokkru leyti þátt í byggingarkostnaðinum. Þetta er að öllu leyti eðlilegt. Það lá ekkert fyrir n. um það, hvað hefur verið hugsað í þessu máli um fjórðungssjúkrahús, sem hér hefur verið minnzt á undir þessum umr., en þó ég fylgi þessu frv., get ég ekki neitað því, að mér þótti, — þó að ég flytji ekki brtt. um það og muni ekki gera —, ákvæðin um rekstrarkostnaðinn ekki að öllu leyti eðlileg, og álít ég, að það hefði mátt koma þeim betur fyrir. Það, sem ég á við, er það, að það er gert ráð fyrir því, að sá styrkur, sem ríkið á að greiða, sé miðaður við 1/3 hluta daggjalda á hvern sjúkling, sem er utan héraðs og notar sjúkrahúsið, en á þessu er sá galli, sem ég álít, að megi ráða bót á, og vil benda frsm. á, að það er ekkert ákvæði í frv. um það, hve há daggjöldin skuli vera fyrir hvern sjúkling. Það hafa þau bæjarfélög, sem sjúkrahúsin eiga, alveg í hendi sér. Gerum ráð fyrir, að sjúkrahús væri rekið þannig, að daggjöld utanhéraðssjúklinga yrðu 100 þús. kr., — ég tek þá upphæð —, þá þarf, til þess að þetta sé réttlátt, rekstrarhalli bæjar- eða sveitarfélagsins að vera 100 þús. kr. líka, ef jafnmargir sjúklingar eru innanhéraðsmenn og utanhéraðs, því að ef það væri ekki, þá væri ekki í þessu nokkurt jafnrétti. Það er hægt að hugsa sér, að daggjöld yrðu svo há, að sjúkrahúsin yrðu rekin að öllu leyti með þessum ríkissjóðsstyrk og ríkið þyrfti að greiða með sínum sjúklingum án þess, að bæjarfélagið þyrfti nokkrar fórnir að færa í staðinn, og það er meira að segja hægt að hugsa sér, að þau yrðu rekin með hagnaði með styrknum, þó að það mætti gera ráð fyrir því, að meðlimir bæjarfélagsins vildu hafa daggjöldin sem lægst. Enn fremur er á það að líta, sem ég álít galla, þó að ég flytji ekki brtt. um það — muni ekki gera —, að þeir menn, sem sækja sjúkrahúsin utan héraðs, þurfa oft að taka á sig langa ferð, og þeir greiða sömu daggjöld og innanhéraðsmenn, vegna þess að ríkið greiðir sem styrk 1/3 daggjalda, en þeir menn eru miklu verr settir heldur en þeir, sem eru í sjálfu sveitarfélaginu, sem sjúkrahúsið rekur, og þurfa ekki annað en að fara þangað stutta leið í bíl, nokkur hundruð metra í hæsta lagi eða bara nokkra metra. Þannig verða þeir sjúklingar, sem búa utan héraðs, verr settir. Ef sjúkrahúsið er rekið án rekstrarhalla í sveitarfélaginu, sem sjúkrahúsið rekur, kemur þetta misrétti fram án þess, að meðlimir þess sveitarfélags hafi þurft nokkuð á sig að leggja.

Ég vildi benda á þetta og álít, að það mætti ráða bót á þessu ákvæði, en þó að mér þyki þetta gallar, hafa þeir ekki valdið því, að ég hafi ekki ákveðið að fylgja frv., en hins vegar væri æskilegt, að hv. flm. vildi taka þetta til athugunar, því að ég hygg, að það mætti koma þessu ákvæði eðlilega fyrir.