16.02.1943
Efri deild: 57. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 294 í C-deild Alþingistíðinda. (2941)
60. mál, sjúkrahús o.fl.
Haraldur Guðmundsson:
Hv. þm. Str. hefur bent á margt af því, sem ég vildi benda á. Eins og ég sagði við fyrri umr. málsins, er ég því samþykkur, að í flestum tilfellum sé fullkomin ástæða til þess, að ríkissjóður leggi fram helming kostnaðar, þó að ég hins vegar álíti hæpið að binda það með l. Ég er alveg sammála því, sem kemur fram í bréfi landlæknis, að eðlilegt sé að gera þar nokkurn mun á. Að vísu virðist mér þessi lagasetning ekki vera sú trygging fyrir sveitar- og bæjarfélögin sem flm. ætlast til, vegna þess að allt er bundið þeim skorðum um fjárveitingar, að fé sé veitt í fjárl. til þess, og það mætti náttúrlega án nokkurra l., ef ákveðið væri að taka það inn í fjárl. og þingmeirihl. væri fyrir því. Ég held ekki, að það sé svo mikil vandkvæði í sambandi við 1. gr., að ekki sé gerlegt að samþykkja hana, og mun ég greiða henni atkv., enda þótt ég geri við hana þá aths., sem ég hef gert grein fyrir. Um 2. gr. — b-liðinn — vil ég segja það, að ég álít ákaflega varhugavert og óskynsamlegt að samþ. hann. Ég vil fyrst segja örfá orð í sambandi við það hlutfall, sem gert er ráð fyrir milli greiðslna ríkissjóðs og bæjarfélagsins. Það er gert ráð fyrir, að ríkissjóður greiði 1/3 hluta daggjalda fyrir utanhéraðsmenn, en ég fæ ekki betur séð en að þetta hlutfall, 1/3, sé af handahófi, og það hefur ekkert komið fram, sem sýni, við hvað þetta hlutfall er tengt, og það er erfitt og ógerlegt að hindra það, að sum sjúkrahús hafi sín daggjöld þannig, að nærri láti, að þau beri sig með því að hafa daggjöldin 50% hærri fyrir utanhéraðsmenn en innanhéraðsmenn. Nú er það sennilega ekki meiningin, að sjúkrahúsin eigi að hafa hagnað af veru utanhéraðsmanna, heldur að þau eigi ekki að hafa kostnað af þeim. Ég vildi mega minna á, að það var svo fyrir stríð, að hjá flestum sjúkrahúsum voru þrenns konar daggjöld. Ákveðið fyrir innanhéraðsmenn og svipað eða hærra fyrir aðra Íslendinga, en miklu hærra fyrir útlendinga og svo miklu hærra, að það var stundum hagur að því að taka útlendinga á sjúkrahús, sérstaklega á þeim stöðum, þar sem mikið var af erlendum skipum og útlendir sjómenn lágu oft. Nú geri ég ráð fyrir, að ekki sé meiningin, að sjúkrahúsin eigi að greiða fyrir útlendinga, og þar sem þeir eru utanhéraðsmenn, ætti ríkissjóður að greiða 1/3 kostnaðar fyrir þá. Ég geri ráð fyrir, að það sé nærri lagi að áætla, að undir venjulegum kringumstæðum geti halli af utanhéraðssjúkling orðið 50%, en með því að hafa daggjöldin óþarflega há, geta sjúkrahúsin hagnazt á greiðslum ríkissjóðs, og mun það ekki vera ætlun flm. Ég held, að það sé ekki önnur leið heppilegri til þess að jafna þessu milli sjúkrahúsanna heldur en sú, sem landlæknir bendir á, að það sé heilbrigðisstj., sem úthluti því fé, sem veitt er á hverju ári, því að það liggur í augum uppi, að það fer eftir því, hve daggjöld sjúklinga eru mikil, hve miklu þarf að bæta við fyrir utanhéraðsmenn.
Þetta er 3. umr. málsins, og ég get ekki farið fram á, að henni verði frestað, en ber fram brtt. um, að b-liður verði felldur niður. Ef þessi breyt. verður gerð á frv., mun ég, þó að ég sé ekki ánægður með það, geta greitt því atkv. mitt.