16.02.1943
Efri deild: 57. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 298 í C-deild Alþingistíðinda. (2945)

60. mál, sjúkrahús o.fl.

Brynjólfur Bjarnason:

Þar sem hv. frsm. n. er ekki við, hefur það fallið í minn hlut að tala fyrir hans hönd. Það hefur komið fram í hv. d. nokkur gagnrýni á allshn., einkum vegna þess, hve fyrsta nál. var stutt. En það er misskilningur, ef dregin er af því sú ályktun, að n. hafi ekki tekið frv. til rækilegrar íhugunar. Hún gerði það. Hún. lagði að vísu ekki fram nein rök, en allar hliðar málsins voru ræddar ýtarlega. Ef birt væru þau rök, sem lágu til grundvallar nál., mundu þau sanna, að n. tók málið föstum tökum. Þau sjónarmið, sem koma fram í bréfi landlæknis, voru rædd, en n. komst að þeirri niðurstöðu, að hún gæti ekki fallizt á þau. N. er þeirrar skoðunar, að hér sé um nauðsynlegar endurbætur að ræða og sjúkrahús sé of lítið studd, og fyrir þá sök verða bæði sjúkrahúsvist og sjúkratryggingar mjög dýrar. Þess vegna hefur n. talið nuðsynlegt, að ríkið auki styrk sinn til sjúkrahúsanna.

Sumir hv. þm. hafa lýst sig fylgjandi tilgangi frv., en fært þó fram rök svipuð þeim, er koma fram í bréfi landlæknis, — fyrst við a-lið, að hann sé alveg gagnslaus. Þetta nær engri átt. Það getur ekki verið gagnslaust að ákveða, að ríkissjóður skuli leggja fram helming stofnkostnaðar sjúkrahúsa, sem bæjar- eða sveitarfélög reisa. Það verður vitaskuld að leggja styrkina fram í fjárl., en það getur ekki verið sama, hvort byggingaraðili fær þriðjung eða helming stofnkostnaðar greiddan. Helmingur er meira og gerir kleift að hafa sjúkrahúsvistina ódýrari. Auk þess hlýtur það að ýta undir, að meira fé sé veitt í fjárl. til sjúkrahúsbygginga, því að þegar fjárl. eru ákveðin, þá liggja fyrir beiðnir um ákveðin framlög til sjúkrahúsa.

Þá hafa sumir talað um það, að í ráði væri nokkur skipulagsbreyting að því er snertir byggingu sjúkrahúsa, að hafa t.d. eitt stórt sjúkrahús í hverjum landsfjórðungi, er tæki aðallega við sjúklingum úr þeim fjórðungi og væri fullkomið. Slíkt mundi einmitt falla inn í ramma þessara laga.

Þá er hitt atriðið, í b-lið 1. gr., sem hefur sætt öllu meiri gagnrýni. Það hafa þó ekki verið færð nein rök gegn því, að það væri réttlátt, að sjúkrahús væru styrkt í hlutfalli við það, hve marga utanhéraðsmenn þau hýsa. En eitt er það, sem kemur fram í bréfi landlæknis og hann telur annmarka á frv. Ég ætla ekki að fara ýtarlega út í það, enda enginn þm. tekið það upp nema hv. 1. þm. Reykv. Þessi rök eru firra og svo langt sótt, að furðu gegnir, að slíkt skuli koma fram hjá landlækni. Það þarf mikið ímyndunarafl til að hugsa sér, að farið yrði að nota sjúklinga í gróðabrallsskyni og flytja þá á milli með það fyrir augum að græða á þeim, Það myndi stranda á sjúklingunum og það mundi stranda á læknunum. Ég hef ekki orðið var við annað sjónarmið hjá læknunum en það, hvar þeir gætu komið sjúklingunum fyrir og hvar væri sæmilegur samastaður. Ef einhverjum dettur í hug, að sjúklingar yrðu fluttir í gróðabrallskyni, þykir mér það sýna lítið traust á læknastéttinni. Maður getur ekki varizt þeirri hugsun, að slík rök séu borin fram aðeins til þess að finna eitthvað frv. til foráttu. Slíkt gerir n1ann tortrygginn á önnur rök, sem koma úr sömu áttum.

Hins vegar er það rétt, að það er ófært, að sjúkrahúsin ráði sjálf, hversu há daggjöld þeirra skuli vera, því að vitaskuld er til þess ætlazt, að opinber styrkur yrði til þess að lækka þau, en ekki hækka. Þetta var rætt í n., og kom til orða að bæta inn í ákvæði um, að staðfesta þyrfti af ráðherra upphæð daggjalda, en komizt að þeirri niðurstöðu, að heilbrigðisstj. hefði þetta mál hvort. sem er í hendi sér og því væri ekki nauðsynlegt að taka það fram í l.

En þar sem komið hefur fram svo mikil gagnrýni einmitt út af þessu atriði, og það hefur mest til síns máls, hefur n. komið sér saman um brtt. þess efnis, að við síðustu mgr. b-liðar 1. gr. bætist: enda hafi heilbrigðisstjórnin staðfest upphæð daggjaldanna.

Einn hv. þm. (eða fleiri) hefur óskað þess, að málið væri tekið út af dagskrá og umr. frestað, þar til n. hefði tekið það til nýrrar athugunar. Ég hygg, að það hafi enga þýðingu. Ég hef talað við meðnm. mína, og við höfum komizt að þeirri niðurstöðu, að þessi krafa sé ekki á rökum reist. Hins vegar er n. sammála um brtt.. Ég hygg, ef n. tæki málið fyrir aftur, mundi hún ekki skila því öðurvísi. En ef hv. þm. hafa trú á því, að n. komist að annarri niðurstöðu, og eru ekki reiðubúnir að greiða atkv. nú, þá má vitaskuld athuga það, ef þessir hv. þm. halda fast við þá kröfu.