08.12.1942
Neðri deild: 11. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 309 í C-deild Alþingistíðinda. (2973)
34. mál, húsaleiga
Fjmrh. (Jakob Möller):
frv. þetta er framborið til staðfestingar brbl., sem út voru gefin 29. sept. s.l. samkv. tilmælum bæjarstj. Reykjavíkur, um heimild þá, sem um getur í frv. Þarf ég ekki að skýra það nánar. Ég mælist til, að frv. sé vísað til hv. allshn. að umr. lokinni.