09.03.1943
Efri deild: 70. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 329 í C-deild Alþingistíðinda. (3019)

146. mál, innehimta skatta og útsvara

Fjmrh. (Björn Ólafsson):

Viðvíkjandi fyrirspurn frá hv. þm. Barð. hef ég það að segja, að það hefur að vísu ekki enn verið gerð nákvæm kostnaðaráætlun um þetta, en það mun ekki þurfa lengi að leita til þess að finna, að þetta mun ekki hafa aukinn kostnað í för með sér, þegar tekið er tillit til þess, hve marga starfsmenn ríkið hefur nú til þess að annast innheimtuna, auk þeirra, sem bærinn hefur. Það verður a.m.k. ekki á réttum grundvelli byggt, ef það lækkar ekki kostnaðinn að hafa sameiginlega innheimtu fyrir ríki og bæ.