14.01.1943
Efri deild: 31. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 128 í B-deild Alþingistíðinda. (305)
89. mál, innflutningur og gjaldeyrismeðferð
Magnús Jónsson:
Það hefur hver eftir annan, sem talað hefur um þetta mál, talað um það, að hér væri eiginlega ekkert verið að gera efnislega, og ég hef orðið þess var, að í Nd. hafi upp á það síðasta verið orðin ríkjandi sú skoðun, að þetta frv. væri ekki nema formið, bara dálítil fyrirkomulagsbreyting, annað ekki. Nú, þetta er satt að víssu marki, en ég held, að það sé ekki úr vegi að minna á það áður en málið fer til n., að það eru til menn, sem álíta þetta meira en formsmál. Ég vil sýna þessu máli þá virðingu að álita það talsvert mikið efnislega, og fer þar eftir því, sem stj. segir í grg. frv. Þar er talað um, að stj. beri þetta fram, vegna þess að hún þykist ekki hafa þær heimildir, sem hún telur sig þurfa til þess að framkvæma nauðsynlegar ráðstafanir, og verði því að útvega sér þær. Þetta hefur aðeins verið talin tilfærzla á n., en ég vil koma því út af því spori og telja þetta efnislega mikið mál. Það er rétt, að stj. fer hægt í þetta, og ég held, að það sé alveg rétt hjá stj. að taka hæg spor. Ef þau eru stigin rétt, er ekki víst að leiðin verði svo löng eða erfið.
Það eru ýmis atriði í þessu, sem hafa ekki verið í l. áður, og því er það, að hæstv. ríkisstj. vill fá heimild til þessara ráðstafana, og þó ekki væri annað en samfærzla valdsins, er það fullkomin efnisbreyt. Ég hafði það til athugunar, meðan ég var viðskiptamrh., hvort ekki væri æskilegt að færa saman starf innflutnings- og gjaldeyrisn. og ráðstöfunarvaldið yfir skiprúminu og draga verðlagseftirlitið undir sama valdsvíð. Ég gerði athuganir um þetta, en eins og kunnugt er, hafði sú stj. ekki þá aðstöðu, styrkleik né þá framtíðarmöguleika, sem þurfti til þess, að rétt hefði verið að gera slíkar ráðstafanir. En það þarf ekki annað en að líta á dóm sögunnar um það, hvernig innflutnings- og gjaldeyrisn. er til orðin og hvernig störfum hennar hefur verið varið til þess að sjá, að þetta er nauðsynlegt. Þessi n. er skipuð með tilliti til þess, að skortur sé á gjaldeyri og skipakostur nógur. Nú er þetta breytt. Nú er gjaldeyrir til, en skipakostur lítill og ýmsir örðugleikar með innkaup og fleira, sem áður voru ekki. Það er augljóst, að það er stórkostleg efnisbreyt., þegar breyta á um starfssvið þessarar n. þannig, að hún fari með það, sem nú er örðugast, sem sé innflutninginn til landsins, því að nú eru það ekki lengur vörukaupin, sem eru örðugust, nú er það innflutningurinn. Ég tel það út af fyrir sig stórvægilegast að færa þetta mikla vald til einnar n., en mér þykir það einkennilegt, þegar menn tala um, að þetta sé lítið spor og svo jafnframt þetta ægilega vald. Einhver talaði jafnvel um, að þetta væru þau mestu völd, sem nokkrum mönnum hefðu verið fengin í hendur hér á landi. Mér finnst þetta ekki lítið spor. Það er ekki svo lítið að setja upp n., sem hefur meira vald en nokkur önnur n. hefur áður haft og sameina kraftana til stórra átaka. Ég skal svo ekki tala um það, sem er nýtt í þessu frv., því að þm. er það ljóst.
Ég er alveg sammála því, sem hv. 3. landsk. sagði, að það er ákaflega mikið undir því komið, að þetta ráð sé skipað þannig, að það hafi alþjóðarhag fyrir augum, en náttúrlega má það ekki vera skipað með of miklum smásmuguhætti. Það getur verið ómögulegt að velja það svo, að ekki geti komið einhverjir á eftir og sagt, að þessi sé af þessari stétt og hinn af hinni og það sé tekið meira tillit til þessarar stéttar en hinnar. Aðalatriðið er það, sem hæstv. ráðh. sagði, að ráðið sé ekki skipað þannig, að það veri með sér, að það sé einskorðað við einhverja stofnun. Þess vegna legg ég áherzlu á, að stj. skipi þessa n., en hún sé ekki kosin af þ. Ég vil ekki, að það skapist það ástand, að fulltrúar flokkanna togist á um málin eins þegar teygt er hrátt skinn og standi eins og hundar á sínum skæklinum hver. Ég er mjög ánægður með þetta og held, að þetta ætti að vera svona í fleiri tilfellum. Ríkisstj. ber ábyrgð fyrir þ., hvað sem hver segir, og það eins, þótt hún sé skipuð með óvenjulegum hætti, svo að það er óbeinlínis þ., sem skipar slíkt ráð og býr í hendurnar á stj. Ég vil leggja áherzlu á, að það er ómögulegt fyrir nokkra ríkisstj. að sætta sig við að skipa ekki n., sem á jafn víðtækan hátt á að hafa með stj. á þeim stóru málaflokkum að gera sem stj. er skipuð til að vinna að og hefur lýst yfir, að hún ætli að vinna að. Ég veit ekki, hvernig stj. gæti sætt sig við skipun n, til þess að vinna að slíkum málum án þess að hafa nokkra tryggingu fyrir því, að sú n. ynni í samræmi við vilja stj. um þessi mál. Ég vil segja það, að það sé nokkur ástæða til þess, að þingið fari varlega í skipun þessarar n., en ég lít svo á, að það sé aukin ástæða til þess, að stj. skipi þessa n., vegna þess að stj. er ekki í því venjulega sambandi við þ., og því ekki trygging fyrir því, að þ. skipi n. með þeim hætti, að stj. gæti unnið með henni. Stj. ber svo ábyrgð fyrir Alþ. m.a. vegna þess, að þ. getur neitað um þá nauðsynlegu löggjöf og annað slíkt, sem þ. hefur á sínu valdi. Ég mundi ekki í stj. sporum sætta mig við að fá ekki að skipa n., og frá þ. sjónarmiði mundi ég ekki sem alþm. vilja stuðla að því, að svona voldugt ráð væri myndað, sem það hefði engin tök á önnur en mannaskipti, því að mér skilst, að það ekki vera hægt að taka af því ráðin nema með mannaskiptum, og þann tíma, sem þ. ekki situr, er ekki hægt, ef ráðið er þingkosið, að skipta um menn. Meðan við búum við það stjórnarfyrirkomulag, að þingið starfi með stj., er rétt, að ráð sem þetta sé skipað af stj. og beri ábyrgð fyrir henni eins og stj. fyrir þinginu, því að þótt stj. sé ekki skipuð af þ., hefur þingið óbeinlínis veitt henni stuðning sinn með því að mynda ekki aðra stj. Ég álít alls ekki fært að setja upp svona voldugt ráð, sem starfi eftirlitslaust milli þinga. Ég vil, að það sé stj., sem ábyrgðin hvíli á, ef illa fer með val manna í ráðið, að það sé hennar stefna, sem ráði, og þ. geti þess vegna, þegar það kemur saman aftur, krafið hana fullkomins reikningsskapar um það, sem starfað hefur verið í þessum málum, en það skilst mér, að þ. gæti ekki, ef það kysi n. Stj. hefði þá vald yfir n., og ég vil ekki svipta stj. því eina valdi, sem hún getur haft yfir þessari voldugu n. Ég held ekki, að þ. sé að afsala sér neinu valdi með því, þó að það ekki kjósi þetta ráð, en það setur meginþunga ábyrgðarinnar á stj., sem það svo á aftur vald á.
Ég skal svo ekki fjölyrða um þetta að svo komnu, en ég vildi leggja áherzlu á, að menn tækju þessu frv. ekki of léttilega, vegna þess að þetta sé ekki annað en formsbreyting, því að það mun sannast, ef sæmilega fer um framkvæmd þessa máls, að það er mikil efnisbreyting, sem þetta frv. felur í sér.