12.03.1943
Neðri deild: 74. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 349 í C-deild Alþingistíðinda. (3058)
21. mál, virkjun Andakílsár
Viðvíkjandi því, hvernig eigi að virkja fossa á Íslandi, álít ég, að það eigi að vera eins og verið hefur, að hið opinbera eigi að vinna að því í umboði þjóðarinnar, og til þess að framtak hinna ýmsu aðila fái notið sín sem bezt, eigi þetta að vera rekið jöfnum höndum af hálfu bæjar- og sveitarfélaga, og eins geti komið til mála, samvinnufélög, sem fengjust til slíks, gætu fengið einhverjar virkjanir eða leiðslur. Á þennan hátt held ég, að bezt notist áhugi og fórnfýsi landsmanna á hinum ýmsu stöðum landsins, enda er umhyggja fyrir fyrirtæki meiri, þegar það er rekið af staðnum sjálfum. Við skulum athuga, hver afleiðingin verður, ef farið er að segja við Borgfirðinga:
„Ríkið ætlar að sjá um þetta. Þið þurfið ekki að vera að því.“ Afleiðingin verður sú, að menn sjá, að þeir þurfa ekki eins mikið á sig að leggja, því að það er í öllum tilfellum ríkið, sem rekur þetta. Halda menn ekki, að hver um sig leggi meira á sig, ef bæjar- og sveitarfélögin reka þetta, en ef það er ríkið sjálft? Ég held, að ef menn einbeita sér að raforkumálum hér á Íslandi, sé hægt að fá miklu meiri kraft á að koma þessu upp, svo framarlega sem rétt er farið að. Það stendur að vísu vel á núna fyrir ríkinu með að hlaupa undir bagga með ábyrgðir og slíkt, vegna þess, hve ríkið er ríkt, en það er ekki víst, að alltaf standi svo á, að ríkið treysti sér til að láta 90–100% ábyrgðir. Það getur verið, að ríkið verði að segja við bæjar- og sveitarstjórnirnar: „Nú verðið þið að leggja fram svo og svo mikið.“ Ég álít, að kraftana þurfi að hagnýta sem bezt, og ég álít hagsmuni fólksins betur tryggða, ef bæjarstjórnirnar gera þetta sjálfar en ef ríkið gerir það. Það er reynsla fyrir því, að ríkið hefur verið miskunnarlausara í álagningum sínum á nauðsynjar fólksins en bæjar- og sveitarfélögin. Ríkið hefur tvöfaldað það, sem það hefur haft með að gera á ýmsum tímum, þegar ekki hefur verið þörf á því, á sama tíma og bæjarfélögin hafa sýnt sig í því að láta verðmætin af hendi tiltölulega ódýrt. Ríkið hefur tvöfaldað símgjöldin, en rafmagnið hér í Reykjavík hefur lítið hækkað. Ef raforkumálunum hefði verið stjórnað frá sama sjónarmiði og símamálunum, hefðu rafmagnsgjöldin hér tvöfaldazt og meira til.
Viðvíkjandi því, hver eigi að virkja, álít ég, að halda eigi áfram þeirri stefnu, sem byrjað hefur verið á, að sveitar- og bæjarfélögin eigi að fá að leggja sig fram, en fá aðstoð ríkisins. Hins vegar vil ég, að ríkið geti á hverjum tíma, sem það vill, bæði tengt saman þessi orkuver og sett heildarlöggjöf um þau, ef það telur þess þörf, og tryggi þannig og skipuleggi þessi mál sem bezt án þess að koma í veg fyrir eðlilegan gang þeirra, en það álit ég, að vaki fyrir meiri hl. fjhn. með þeirri till., sem hún flytur núna, því að það er vitanlegt, að árangurinn verður sá, að ekki er haldið áfram með undirbúning pantana. Undirbúningur, sem gerður hefur verið, er ónýtur, og gera verður nýjar áætlanir um rafmagn fyrir Snæfellsnes- og Hnappadalssýslu, Strandasýslu, Vestur-Húnavatnssýslu og Austur-Húnavatnssýslu, og á meðan á þessu stæði, væri virkjunin drepin. Nú hefur komið fram sú merkilega hugmynd. frá mönnum, sem standa að meiri hl. fjhn., að hér sé um að ræða að styrkja einkabrask í rafmagnsmálum, svo framarlega sem ríkið tekur ekki fram fyrir hendurnar á þeim sveitum, sem standa að Andakílsvirkjuninni, á þeim grundvelli, að það ætli að sjá fyrir rafmagni til Húnavatns- og Strandasýslu. Þessir menn tala um einkabrask í rafmagnsmálum á Íslandi, á meðan ríkið taki þau ekki í sínar hendur. Ég vil spyrja þessa menn: Álíta þeir allan bæjarrekstur á Íslandi einkabrask? Það hefur hingað til verið skilið svo, að einkabrask væru fyrirtæki, sem einstaklingar legðu í. Það eru til fyrirtæki, sem Framsfl. sérstaklega ber fyrir brjósti, samvinnufélögin, og ég vil spyrja þá: Hvað er Samband íslenzkra samvinnufélaga og KEA? Eru þau ekki einkabrask? Hvers konar hugsunarháttur er hjá þeim mönnum, sem kasta því fram, að það sé einkabrask, ef bæjarfélögin eiga fyrirtækin og reka þau? Hvernig geta þeir menn, sem halda því fram, að bæjarreksturinn sé ekki nógu opinber rekstur, hvernig geta þeir látið það viðgangast, að 30–40 menn reki alla togara landsins, sem öll afkoma landsins byggist á, miklu meira en á raforku landsins. Ég vil spyrja þá menn, sem halda því fram, að Sósfl. sé genginn í þjónustu einkabrasksins. — ég vil spyrja þá, hvort þeir muni samþykkja það, ef komið verður með frv. um það hér í þinginu á morgun, hvort þeir samþykki að leggja alla togaraútgerðina undir ríkið. Það er aðeins vegna framsóknarmanna, sem ég spyr að þessu. Mig langar til að fá svar. Mig langar líka til að spyrja Framsfl. og ekki sízt fyrri þm. Árn.: Hvernig í ósköpunum stóð á því, þegar átti að beita sér fyrir því, að samþ. væri sérleyfi fyrir því að veita raforku frá Sogsvirkjuninni til Selfoss, Eyrarbakka og Stokkeyrar? Í 1. gr. stendur: „Ríkisstj. er heimilt að veita sérleyfi til þess að veita raforku frá Sogsstöðinni til Selfoss, Eyrarbakka, Stokkseyrar og til þeirra fyrirtækja og sveitabýla í Árnessýslu, sem þannig eru sett, að unnt er kostnaðar vegna að veita rafmagni til þeirra, og einkarétt til sölu á þessu svæði“. Og í 3. gr. stendur: „Skilyrði fyrir sérleyfi og hlunnindi sérleyfishafa til handa eru þau, er nú skal greina: Að stofnað verði félag til að veita rafmagni og reka fyrirtækið, sem hafi hæfilegt stofnfé að dómi ráðuneytisins og ráði yfir a.m.k. 900000 kr. til framkvæmdanna“. Hvernig í ósköpunum datt þessum form. raforkumálan., 1. þm. Árn., í hug að leggja fram till. um, að stofnað yrði félag, einkabrasksfélag, með 900 þús. kr. kapitali til þess að leggja línu til Selfoss, Eyrarbakka og Stokkseyrar? Hvers vegna kom hann ekki með frv. um, að ríkið ætti að leggja þessa línu? Hvernig datt honum í hug að ganga í þjónustu einkabrasksins? Vonandi var það ekki eingöngu í þjónustu kaupfélagsins. Ég spurði, þegar frv. kom fram, hvaða aðilar það væru, sem að því stæðu, og þegar ég heyrði, að það voru sveitarfélögin og hreppsfélögin, fannst mér eðlilegt, að þau hefðu áhuga fyrir að fá rafmagn og mundu reyna að útvega sér fé í því skyni, og það kom ekki ein einasta rödd fram í þinginu um það, að það væri eingöngu ríkið, sem ætti að gera þetta. Hvernig stendur á þessum umsnúningi eftir það fordæmi, sem þessir menn hafa beitt sér fyrir? Ég á alveg eftir að fá allar upplýsingar um það.
Þá ætla ég að koma að því, sem ég býst við, að komi aðallega til umr. í sambandi við þetta mál, og það er spurningin um það, á hvern hátt og með hvaða skilyrðum sé hægt að koma rafmagninu til þeirra, sem búa í sveitum og búa þar framvegis. Ég held, að spursmálið um rafmagnið til handa sveitunum verði ekki leyst öðruvísi en í sambandi við það, hvernig við eigum að halda landbúnaðarframleiðslunni gangandi og hvernig við getum komið rekstrarháttum þannig fyrir, að tryggðir séu möguleikar þeirra manna, sem í sveitunum búa. Ég álít það ekki hægt nema með því að tryggja þeim miklu meiri viðskipti en þeir hafa haft fram að þessu. Það þarf að skapa þeim nýja möguleika fyrir fjölbreyttari framleiðslu en nú er. Byggðin þarf að flytjast til með það fyrir augum, hvar auðveldast sé að reka búskap. Menn vita, hvernig byggðin er til orðin í byrjun, að mestu leyti fyrir tilviljun, og sum af þessum býlum hafa lagzt í eyði, sumpart fyrir tilviljun, vegna þess að menu gátu ekki búið þar lengur, og sumpart af náttúrunnar völdum. Möguleikarnir fyrir landbúnaðinn álít ég, að liggi fyrst og fremst, og svo að segja eingöngu, í innanlandsmarkaðinum. Framtíð hans byggist á því, að það búi svo margir við sjávarsíðuna, að þeir geti keypt þær vörur, sem bændur framleiða, og borgað þær. Landbúnaðurinn þarf að skoðast sem líftrygging landsmanna, þannig að það sé tryggt, að honum sé haldið uppi, og það hlýtur fyrst og fremst að vera gert með viðskiptum landsmanna. Framtíðarmöguleikarnir liggja fyrst og fremst í því, að margt fólk búi við sjávarsíðuna, og að skapa aukna kaupgetu hjá því fólki. Möguleikarnir liggja í því að framleiða það, sem við þurfum, en ekki í því að fjölga fólkinu í sveitunum. Við eigum að skapa því fólki, sem í sveitunum býr, meiri lífsmöguleika og við eigum að gera það með því að láta það fá betri vélar og aðstöðu til þess að nota þær vélar. Við þurfum að fá miklu meira af ræktuðu landi, þar sem hæst er að nota vélar, og því léttari sem reksturinn verður, því færra fólk þarf við hann. Við skulum horfast í augu við það, að það er hægt að fá mörgum sinnum meiri afköst fyrir mörgum sinnum minna verð með því að nota vélar, og það getur ekki verið nema skammur tími þangað til afköstin aukast enn, vegna þess að tæknin vex. Ég hef ekki fyrir hendi skýrslur um það, hve framleiðslan hefur aukizt mikið, þrátt fyrir það að fólkinu hefur fækkað í sveitunum, og það liggja heldur ekki fyrir skýrslur um það, hve mikið hún getur aukizt, ef við tryggjum bændunum nægilega mikið af vélum og nægilega mikið af landi til þess að vinna á.
Það leiðir af sjálfu sér, að um leið og unnið er að því að nota vélar meira, þarf að leggja áherzlu á, að þær jarðir, sem ræktaðar eru, liggi hver nær annarri til þess að geta hagnýtt sér þær. Spurningin er sú, hvort við ættum nð láta eyðinguna ganga fyrir sig, eins og áður hefur verið, með öllum þeim kvölum, sem það hefur kostað, eða hvort við ætlum að hlaupa undir bagga og létta undir með þeim mönnum, sem landbúnaðinn stunda. Spurningin er, hvort við ætlum að gera landbúnaðinn að lífvænlegum atvinnuvegi eða hrekja bændurna úr sveitunum eins og að undanförnu. Ég álít ekki þörf á að auka kvikfjárræktina frá því, sem nú er, en að fremur beri að snúa sér að öðrum greinum landbúnaðarins, og hljóta þá breyttar aðferðir að standa í beinu sambandi við framtíð landbúnaðarins.
Rafvirkjun í sveitum verður tiltölulega auðveld í þéttbýli. Það atriði, sem fyrir liggur, er, hvort við eigum, áður en horfið er til þessarar pólitíkur, að vera búnir að láta leggja vegi til bændanna, sem e.t.v. koma til með að liggja um auðnir, síma, rafmagn, byggja hús o.fl. og íþyngja íslenzkum landbúnaði og eyða peningum að meira eða minna leyti til ónýtis, sem kæmu að stórskostlegu gagni, ef þeim væri varið öðruvísi. Þegar lagt var út í þá pólitík 1927 að styrkja íslenzkan landbúnað, — og það var að sjálfsögðu út af fyrir sig eðlileg pólitík —, var sá galli á, að frá byrjun var byggt á þeim grundvelli að halda byggðinni í sveitunum alveg eins og hún er nú á auðsjáanlega að halda áfram á sama hátt. Ég vil minna á allt, sem hefur verið talað um, hvernig færi fyrir landbúnaðinum, hvað erfitt væri fyrir bændur, að þeir skyldu hafa lagt í að byggja hús, og hvernig þeir flosnuðu upp vegna húsanna. Er þetta af því, að það sé ekki réttmætt, að íslenzkir bændur eigi hús til að búa í? Nei, það er vegna þess, að það hefur ekki verið tekið tillit til þess, hvað væri hentugast fyrir landbúnaðinn. Mitt álit er, að nú sé kominn tími til að endurskoða þessa pólitík og að ekki sé haldið áfram með rafmagnsmálið, fyrr en við erum búnir að koma okkur niður á, hvernig stefnan á að vera.
Hv. þm. A.-Húnv. minntist á, að það ætti jöfnum höndum að raflýsa bæi og sveitir. Það vakir auðsjáanlega fyrir meiri hl. fjhn, að knýja þetta fram, þessa pólitík, til að viðhalda dreifbýlinu, hvað sem það kostar. Hvað hefði verið sagt 1906, þegar fyrst var verið að leggja hér síma, ef því hefði verið haldið fram, að ekki ætti að vera sími, nema hann kæmi bæði í bæi og sveitir? Það hefði ekki verið skynsamlegt, og því hefði ekki verið tekið vel. Það eitt er eðlilegt, að byrjað sé á framkvæmdum á stöðum, þar sem þær borga sig bezt, og þar sem, hvað rafmagnið snertir, skapast mestir möguleikar til að framleiða raforku ódýrara og ódýrara. Hvað hefði verið sagt, þegar byrjað var að leggja þjóðvegi, ef það hefði verið gert að skilyrði, að þjóðvegur skyldi lagður um hverja sveit? Þessi pólitík hefur aldrei verið rekin í stórframkvæmdum á Íslandi, og er ekkert vit að taka hana upp í raforkumálunum.
Hv. þm. V.-Húm. sagði, að það væri krafa þeirra, sem byggju í sveitum, að fá rafmagn. Allir væru jafnréttháir. Ég vil undirstrika það, að allir eru jafnréttháir, líka um kosningarrétt, og mér þykir vænt um að heyra, að hv. þm. hefur lært svo mikið á einu ári, síðan kosningamálið komst í höfn. Við skulum halda fast við þetta jafnrétti og framkvæma það, eftir því sem í okkar valdi stendur. Við skulum koma að öðrum sviðum. Allir hafa sömu kröfu til þess, að þau lífsþægindi, sem þjóðfélagið getur veitt þegnum sínum, verði látin þeim í té. Allir landsmenn hafa sama rétt til að ráða yfir togurunum og Kveldúlfur, allir hafa sama rétt til að búa í „villum“ eins og Jónas, allir hafa sama rétt til að eiga t.d. ísskápa til matvælageymslu. En til þess að framkvæma þennan rétt þarf að kippa burt þeim óréttláta grundvelli, sem þjóðfélagið er byggt á og Framsfl. vill halda við. — Samkv. skilningi hv. þm. V.-Húnv. er það eingöngu fólk í kaupstöðum, sem nýtur lífsþæginda. En samkv. jafnréttiskröfu hv. þm. eiga börn í kaupstöðum líka heimtingu á grænum bletti í kringum sig eins og börn í sveitunum og til þess að anda að sér hreinu lofti og drekka almennilega mjólk.
Ef við ætlum að fara út í heimspekilegar viðræður um jafnrétti, get ég sagt fulltrúum sveitanna það, að þeir mega vera vissir um, að þeir, sem í bæjum búa og njóta rafmagnsins, fara líka á mis við það, sem e.t.v. er nauðsynlegra en rafmagnið, og fyrir þann flokk, sem hefur hindrað það, að hér væri hægt að byggja nóg, þýðir ekki að tala um jafnrétti. Þeir bera ábyrgð á kjallaraíbúðunum hér í Rvík. Ef á að fara út í siðferðilegar hugleiðingar, þýðir ekki að gera það bara á aðra hliðina. Við verðum að taka hlutina praktískt, þannig að við heimtum ekki í krafti orðagjálfurs gerbreytingar, sem ekki eiga við fjárhagsleg rök að styðjast.
Hv. meiri hl. fjhn. gerir þrennt að skilyrði: Að ríkið reki raflýsingu landsins, að Sogsvirkjunin verði notuð til að raflýsa landið allt og að sveitirnar verði raflýstar jöfnum höndum og bæirnir. Ég vil að endingu benda hv. meiri hl. á, að með þeim rétti, sem ríkinu er gefinn, getur það gert þetta allt, án þess að fá l. í viðbót. Ég skal, með leyfi hæstv. forseta, lesa upphaf 1. gr. úr l. um virkjun Sogsins: „Þegar auka þarf virkjunina fram yfir það, að fallvatnið sé virkjað til hálfs, skal ríkisstjórnin framkvæma aukninguna og gerast meðeigandi að Sogsvirkjuninni, nema samkomulag verði við bæjarstjórn Reykjavíkur um aðra tilhögun. Kaupir ríkissjóður þá tiltölulegan hluta af þeim mannvirkjum, sem fyrir eru í fyrirtækinu, þannig að hann verði eigandi fyrirtækisins að sömu tiltölu og nemur aukningu vélaflsins móts við það vélaafl, er fyrir var, og eigandi að helmingi, þegar fallvatnið er fullvirkjað“. Ríkið tryggði sig með 7. gr. l. um virkjun Sogsins, að það ætti helminginn af öllu afli þar. (SkG: Vill þm. nota þann rétt?) Það eru yfir 50 þús. hestöfl, sem ríkið á rétt sinn til. Ef áætlun meiri hl. fjhn. og raforkumálan. er rétt, er hægt, um leið og Sogið er virkjað til fulls, að tryggja þetta rafmagn handa sveitunum. Ég vil ekki láta leggja stein í götu þess, að Akranes og Borgarnes geti fengið að virkja Andakílsá. En það er til heimild til þess að virkja allt það afl, sem sveitirnar þurfa, og meira en þessi 300 kw. á mann, sem raforkumálan. hefur reiknað út. Ég álít, að það væri ópraktískt og seinunnið og komist fyrr upp með því að leyfa virkjun Andakílsár, og þess vegna beri að hjálpa til, að víðar sé hægt að ráðast í slíkt.