17.12.1942
Neðri deild: 20. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 364 í C-deild Alþingistíðinda. (3066)

22. mál, sala hluta úr landi Viðvíkur

Frsm. (Jón Sigurðsson):

Herra forseti. — N. hefur athugað þetta frv. og leggur eindregið til, að það verði samþ. Ég gerði grein fyrir þessu máli hér í d. fyrir nokkru og hirði ekki um að endurtaka það. Ég skal taka það fram, að málið var búið að ganga til nýbýlastjórnar, og n. áleit það eins vel undirbúið og unnt væri. N. virtist svo ríkar ástæður fyrir þessu, að jafnvel þeir, sem annars eru andvígir sölu þjóðjarða, töldu sig geta verið þessu sammála. Ástæður eru svo sérstakar, að þeir lögðu til, að frv. yrði samþ. Ég hirði svo ekki um að hafa þessi orð fleiri, en vænti þess, að hv. d. geti orðið n. sammála um að samþ. frv.