16.01.1943
Neðri deild: 34. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 391 í C-deild Alþingistíðinda. (3182)
102. mál, nýbyggingarsjóður fiskiskipa
Frsm. (Gísli Guðmundsson):
Frv. þetta um nýbyggingarsjóð fiskiskipa hefur nokkuð borizt í tal í sambandi við annað mál, sem verið hefur til umr. hér í d. Efni frv. er það, að stofna skuli sjóð, sem nefnist nýbyggingarsjóður fiskiskipa, og sé hann undir umsjón ríkisstj. fyrst um sinn. Gert er ráð fyrir því í frv., að til þessa sjóðs renni þær tekjur, sem ríkissjóður innheimtir með útflutningsgjaldi af sjávarafurðum, en samkv. fjárlfrv. 1943 er útflutningsgjald af sjávarafurðum áætlað 1 millj. og 700 þús. kr. Í frv. er gert ráð fyrir, að hér verði um fastan tekjustofn að ræða fyrir nýbyggingarsjóðinn, eða þá starfsemi, sem gert er ráð fyrir, að upp verði tekin með stofnun hans. Því hefur nokkuð verið hreyft á Alþ. áður, að rétt væri, að þessi tekjustofn, útflutningsgjaldið, rynni til sameiginlegra þarfa sjávarútvegsins. Áður hefur það ekki verið talið gerlegt vegna þess, að ríkissjóður taldist hafa þörf teknanna, og má vera, að enn reynist svo). En þó hygg ég, að það hafi mikið til síns máls, að tekjurnar eigi að renna til sjávarútvegsins, eins og gert er ráð fyrir í þessu frv. En ég ætla, að verði þetta ekki ákveðið nú, þá muni ef til vill hæpið, að svo verði gert á næstunni. Eins og nafn frv. bendir til, er ætlazt til, að þessum sjóð og tekjum hans í framtíðinni verði varið til nýbyggingar fiskiskipa. Um það þarf ekki að fjölyrða, að þess muni verða mikil þörf, og er jafnvel þegar orðin, að endurnýja fiskiflota landsmanna. Flotinn hefur goldið töluvert afhroð af völdum stríðsins, en síðan styrjöldin byrjaði, hefur hann ekki verið endurnýjaður með eðlilegum hætti. Í grg. frv. eru teknar upp þær tölur, sem fyrir liggja um stærð fiskiflotans í árslok 7939, og aftur nú í árslok 1942. Geta hv. þm. kynnt sér þær tölur. Að vísu gefa þær ekki alls kostar rétta hugmynd um rýrnun fiskiflotans. því að skipin hafa gengið úr sér svo að skipa eða smálestatalan ein gefur ekki fullnægjandi upplýsingar. Eins og ég sagði áðan, hafa nokkrar umr. orðið um þetta mál í sambandi við annað mál, sem hér hefur legið fyrir d. Ég vil aðeins segja það, að ég hef að svo stöddu ekki talið vert, að upp væru tekin ákvæði um stofnun nýbyggingarsjóðs. Ég hef hugsað mér, að það mál yrði nokkru betur athugað.
Það verður þá til athugunar, með hverjum hætti sjóðurinn gæti með þeim tekjustofni, sem hér um ræðir, stutt að nýbyggingu fiskiflotans. Ég hef ekki talið mig tilbúinn til þess nú að gera slíkar till., en vildi vænta þess, að eftir stuttan tíma gætu legið þau gögn fyrir í þessu máli, sem gerðu það mögulegra en nú að ákveða með vissu þær leiðir, sem fara skyldi. Í bréfi, sem sjútvn. þessarar d. hefur borizt frá Farmanna- og fiskimannasambandi Íslands, er af hálfu þessara samtaka lagt til, að rannsókn fari fram á því, hvaða stærð fiskiskipa sé hentugust hér við land og hvaða tegundir af mótorvélum henti bezt í fiskiskip hér. Þetta eru hvort tveggja atriði, sem reynsla farmanna og sjómanna sjálfra á að skera úr um og nauðsynlegt er, að athuguð séu sem fyrst, og væri bezt, að slíkar athuganir færu fram áður en ákveðið er, hvernig því fé skuli varið, sem gert er ráð fyrir, að geymt verði í nýbyggingarsjóði. Aðalatriði þessa frv. er að ákveða, að þessi tekjustofn, sem nú rennur í ríkissjóð og í fjárlagafrv. ársins 1943 er áætlaðar 1700000 krónur, verði nú tekinn til sérstakra nota í þágu sjávarútvegsins. Frv., sem að nokkru leyti felur í sér það sama og þetta frv., hefur þegar farið gegnum 2 umr. hér í þessari d. Ekki er þó um það vitað, hvaða afdrif það frv. fær á þessi þingi, og virðist ekki ástæða til þess að láta þá afgreiðslu hafa áhrif á gang þessa máls hér á þingi. Tel ég því sjálfsagt að afgreiða þetta mál með venjulegum hætti.
Þar sem frv. er flutt af hluta n., mun það samkv. venju ekki þurfa að ganga til n., og legg ég til, að því verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr., en geri ekki till. um n.