22.01.1943
Neðri deild: 40. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 393 í C-deild Alþingistíðinda. (3202)
107. mál, sala á jarðeignum ríkisins
Einar Olgeirsson:
Herra forseti. — Mér finnst ástæða til þess að ræða ofurlitið þetta frv., sem hér er komið fram. Mér finnst, að þarna hafi verið tekin upp einkennileg stefna og í grg. komi fram fyrirhyggjuleysi flm. Mér þykir horft of skammt fram í tímann af þeim með þessu frv. Þeir hafa hugsað, að það væri eðlilegt og gott, að ríkið bjargaði bændum á krepputímum með því að kaupa af þeim jarðirnar og lofa þeim að búa á þeim áfram. Nú í augnablikinu hafa kjörin hins vegar batnað, og þá vilja þeir þegar selja bændum jarðirnar aftur. Nú vil ég spyrja hv. flm., hvað þeir hugsa sér að taki við eftir þetta stríð. Ég býst við því, að allir þeir hv. þm., sem bera hag landbúnaðar okkar fyrir brjósti, séu ærið hugsandi út af því, hvernig fara muni fyrir honum eftir stríðið, þegar ríkið hefur á þessum tímum þurft að hlaupa undir bagga með landbúnaðinum með því að veita tugir milljóna kr. til þess að bæta upp afurðasöluna. Það má að vísu búast við, að allt gangi sæmilega fyrir honum fyrstu tvö árin eftir stríðið, á meðan verið er að bæta úr mesta hungrinu, en að þeim tíma liðnum býst ég við, að ekki líði á löngu, áður en ný landbúnaðarkreppa skellur yfir, og væri því heppilegra að athuga, hvernig helzt væri að mæta þeirri kreppu. Annars hefur fjöldi jarða verið sprengdur upp í verði af ýmsum bröskurum og þá helzt af auðmönnum héðan úr höfuðstaðnum. sem hafa sótzt eftir því að koma fé sínu í alls konar fasteignir.
Hvernig á þetta svo að bera sig, ef það yrði gert að kjörorði, sem allir stöguðust á hér á árunum, að allt yrði að bera sig? Ég er ærið hræddur um, að það mundi koma fljótt að því, að grípa þurfi aftur til sömu ráðstafana og gerðar voru í síðustu kreppu. Ég held því, að það sé skammsýni að selja nú jarðir ríkisins, og að það geti orðið bagalegt, ekki sérstaklega fyrir ríkið sjálft, heldur einkum fyrir ábúendur jarðanna. Ég held, að það sé áreiðanlega hægt að skapa þeim öruggari kjör sem leiguliðum ríkisins en eigendum jarðanna, því að ef þeir væru jarðeigendur, gætu þeir braskað með jarðirnar eða lagt mikið í kostnað við byggingar á jörðinni og flosnað svo upp á næsta krepputímabili.
Ég á því bágt með að skilja, hvernig stendur á því, að fram skuli koma frv. til l. um sölu á jarðeignum ríkisins til bænda, því að það yrði hvorki bændum né ríkinu til góðs. En hvernig stendur á því, að ekki kemur heldur fram frv. til að tryggja þeim bændum, sem búa á jörðum annarra eigenda en ríkisins, rétt til þess að eignast ábýlisjarðir sínar? Það hafa verið allmikil brögð að því á síðustu tveimur árum, að einstakir auðmenn hafa keypt jarðir og látið bændur sitja þær áfram sem leiguliða. Þarna er hætta á ferðum. Þarna er verið að glata eignarrétti bænda á jörðunum í hendur einstakra braskara, sem þurfa að koma sínum of miklu peningum fyrir á sem tryggastan hátt.
Hvers vegna er ekki borið fram frv. til að tryggja bændum eignarhald á þessum jörðum? Það hefði mér fundizt standa næst þeim, sem vilja gera bændur sjálfstæða, og sérstaklega væri ástæða til þess að losa leiguliða úr þeim ábúðarsamningum, sem þeir hafa gert núna í stríðinu. Ég hefði heldur viljað sjá koma fram frv. í þessa átt heldur en að auka þessar slæmu afleiðingar stríðsins með því að samþ. þetta frv. Ég veit ekki, hve margir íslenzkir bændur eru nú leiguliðar á jörðum einstaklinga, en ég gæti trúað, að það væri um það bil 1/3 hluti allra íslenzkra bænda. Hvers vegna ekki að hjálpa þessum mönnum til að kaupa ábýlisjarðir sínar, ef það vakir fyrir hv. flm. að fjölga sjálfseignarbændum? Hvernig stendur á því, að ríkið, sem mun tvímælalaust vera skásti jarðeigandinn gagnvart leiguliðum, skuli eiga að selja sínar jarðir, um leið og það er viðurkennt af hálfu flm., að það hafi verið nauðsynleg ráðstöfun, að ríkið keypti þær, þegar kreppan stóð sem hæst? Halda hv. flm. ef til vill, að það komi aldrei framar kreppa?