22.01.1943
Neðri deild: 40. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 394 í C-deild Alþingistíðinda. (3204)
107. mál, sala á jarðeignum ríkisins
Bjarni Ásgeirsson:
Herra forseti. — Þótt ég búist við, að þetta frv. fari til þeirrar n., sem ég á sæti í, þykir mér rétt að fara um það nokkrum orðum nú þegar, sérstaklega vegna ummæla í grg. frv.
Ég verð nú þegar að láta þá skoðun í ljós, að ég hygg, að þetta frv. verði síður en svo til hagsbóta fyrir íslenzka bændur, ef það verður að lögum, en það virðist hv. flm. álíta, eftir því, sem fram kemur í grg. og framsögu. Nú dettur mér ekki í hug að neita því, að sjálfseignarábúð hefur marga kosti fram yfir leiguábúð eins og hún hefur lengstum tíðkazt. Leiguábúðin gamla hefur einkum verið illræmd fyrir það, hve lítið öryggi hún veitti leigjendum um ábúðartíma og alla afkomu. Ábúðarrétturinn var aðeins frá ári til árs, og engin trygging var fyrir því, að þær umbætur, sem leiguliði gerði á jörðinni, fengjust nokkru sinni greiddar. Þetta varð til þess að jarðirnar voru almennt illa setnar. Ábúendur hugsuðu fyrst og fremst um það að hafa sem mestar nytjar af jörðunum þann tíma, sem þeir nutu þeirra, og ráku þar því oft fullkomna rányrkju, í stað þess að verja fjármunum sínum og kröftum til þess að læta ábýlisjarðirnar, vegna þess að þeir áttu alls ekki tryggt að fá að njóta umbótanna eða fá greitt erfiði sitt og útlagðan kostnað. Af þessum ástæðum var leiguábúðin gamla sérstaklega illa þokkuð, og það er þetta leigufyrirkomulag, sem jafnan er stagazt á, þegar rætt er um kosti og galla á sjálfseignarábúð og leiguábúð. Það, sem hv. flm. hafa hugsað sér að gera, mun vera hliðstætt því, sem gert var með lögum um sölu þjóð- og kirkjujarða. Sú breyt., sem þau höfðu í för með sér, var á margan hátt ánægjuleg. Sjálfseignarbændum fjölgaði mjög, og miklar umbætur hófust á jörðum og húseignum, og varð ekki annað sagt en að það væri tímabil mikilla framfara, og þessi breyt. á ábúðarfyrirkomulaginu átti sinn mikla þátt í því, og það mun að mestu henni að þakka.
En eftir að kreppan fór að gera vart við sig, hefur komið fram atriði, sem hefur reynzt þungt á metunum, þegar rætt er um kosti og galla sjálfseignarábúðar og leiguábúðar. Það er, að jörðinni hættir við að binda í sér allar þær umbætur og framfarir, sem gerðar eru á jörðinni eða í sambandi við hana bæði af hálfu einstaklinga og ríkisins. Þannig verðfestist allt, sem ríkið og einstaklingar gera, í jörðinni, og hún hækkar alltaf í verði eftir því, sem tímar líða. Útkoman verður sú, að hversu mikið sem lagt er í það að bæta kjör ábúenda, þá gleypir þetta fyrirkomulag það allt, og þeir, sem mest græða á þessu, eru þeir, sem selja jörðina út og flytja jörð af jörð.
Allt þetta getur gengið, þegar verðlag hækkar ár frá ári vegna framkvæmda, sem gerðar eru. En þegar aftur versnar í ári, koma erfiðleikarnir með margföldum þunga vegna þess, að menn hafa keypt jörðina allt of háu verði. Eins og straumurinn hefur verið hér á landi undanfarin ár, þá eru það mennirnir, sem hafa yfirgefið sveitirnar og flutt burt til kaupstaða landsins, einmitt þessir menn hafa grætt á verðhækkun jarðanna og farið með gróðann, en skilið bændurna eftir, þá sem keyptu, sem eins konar vaxtaþræla, sem gjalda þar skatt og skyldur áratugum saman. Þetta er áreiðanlega ein meginástæðan til flóttans úr sveitunum. Þeir, sem úr sveitunum hafa flutt, hafa farið með mikla fjármuni með sér hver fram af öðrum, en skilið bændur eftir sem skattskylda vaxtaþræla þar.
Það er alveg vafalaust, að þessi ferill í íslenzkum landbúnaði hefur verið eitt erfiðasta viðfangsefni íslenzkra bænda undanfarin ár. Þetta kom skýrt fram á kreppuárunum eftir 1930, þegar verðfallið skall á. Þá urðu bændur að standa undir þeirri verðhækkun, sem orðið hafði á jörðunum, og komu þessir erfiðleikar því með margföldum þunga á þeirra herðar, og því fór víða sem fór. Þetta vekur athygli á því, að mesta undirstöðuatriði þess, að landbúnaður geti þrifizt hér á landi, er það, að jarðirnar, sem bændur búa, geti verið sem ódýrastar, svo að sem mestur hluti afrakstursins geti orðið bein daglaun bændanna. Þetta er ekki aðeins undirstöðuatriði fyrir búskapinn, heldur hefur það undirstöðuþýðingu fyrir þjóðfélagið í heild. Þó að Ísland sé á margan hátt gæðum gætt, þá er það harðbýlt og hrjóstrugt samanborið við þau lönd, sem við Íslendingar verðum að keppa við á heimsmarkaðnum um sölu á vörum okkar. Það er því ekki við því að búast, að íslenzkir bændur hafi aðstöðu til þess að keppa við bændur í öðrum löndum um framleiðsluna nema því aðeins, að þeim sé gert léttara fyrir um að afla þessara gæða.
Eitt aðalatriðið til þess að hjálpa bændunum við framleiðsluna er að tryggja það, að landið, sem þeir framleiða þessar vörur á, sé þeim sem ódýrast, svo að það, sem þeir fá fyrir sína vöru, geti að sem mestu leyti orðið bein daglaun fyrir þá, og þeir geti þar með lifað sambærilegu lífi við aðrar stéttir þjóðfélagsins. Jafnvel þó að ekki yrði keppt að því að gera íslenzkan landbúnað færan um að keppa á heimsmarkaðnum, en aðeins yrði framleitt fyrir innlendan markað, þá vitum við það, að bæði sjávarútvegurinn og iðnaðurinn þurfa að keppa við sams konar framleiðslu. í öðrum löndum, og þar af leiðandi er nauðsynlegt, að innlendar landbúnaðarvörur séu sem ódýrastar. Það er því undirstöðuatriði undir því, að útflutningur okkar geti þrifizt í framtíðinni, að hér séu á boðstólum ódýrar landbúnaðarvörur til neyzlu fyrir það fólk, sem að framleiðslu útflutningsvaranna vinnur. En til þess að hægt sé að framleiða ódýrar landbúnaðarvörur þurfa jarðirnar að vera ódýrar. En jarðasalan, svo að ég segi ekki jarðabraskið, hún hefur það í för með sér, að jarðirnar hækka alltaf smátt og smátt í verði við hverja sölu, og það gerir bændum aftur örðugt að framleiða ódýra vöru. Á þessa agnúa komu menn auga, einkanlega eftir verðsveiflur þær, sem áttu sér stað eftir styrjöldina 1914–1918. Menn fóru að brjóta heilann um það, á hvern hátt væri hægt að umbæta ábúðarfyrirkomulagið og eignarfyrirkomulagið á íslenzkum jarðeignum til þess að koma í veg fyrir óheilbrigt jarðaverð. Þá komu fram hugmyndir um það að breyta eldri leiguliðaábúðinni og ná með henni sem flestum kostum sjálfseignarábúðarinnar, þó þannig, að komið væri í veg fyrir verðhækkunarkapphlaup.
Á þinginu 1930 komu fram í frv.- formi tvær hugmyndir varðandi þetta mál. Önnur um það, að bæta leiguliðaábúðina, og var hún borin fram af mér og hv. 2. þm. N.-N. Hin hugmyndin, um óðalsréttarfyrirkomulagið, var borin fram af hv. 2. þm. Skagf. og nokkrum þm. með honum. Þessi frv. náðu ekki fram að ganga á því þingi, en var vísað til Búnaðarfélags Íslands til athugunar á milli þinga. En það bjó í hendur þingsins 1936 löggjöf um bæði þessi efni, og var hún samþ. En þetta voru l. um erfðaábúð og óðalsrétt. Í l. um erfðaábúð er bændum tryggt, að þeir hafi lífstíðarábúð á jörðunum, og afkomendur þeirra hafa rétt til að taka jarðirnar eftir þeirra dag. Ef hins vegar ábúandinn eða afkomandi hans óskar að flytjast burt, er honum tryggt hæfilegt gjald fyrir þær umbætur, sem hann hefur framkvæmt á jörðinni. Leiguliðanum er þarna eins vel tryggt eins og væri hann á sinni eigin jörð, að hann geti notið alls þess, sem hann hefur í hana lagt. Hann hefur þarna jafntrygga ábúð eins og ætti hann jörðina. Hins vegar er óeðlileg verðhækkun fyrirbyggð. Ákvæði óðalsréttarlaganna eru þannig, að bóndinn getur ákveðið, að börn hans eða náinn ættingi taki við jörðinni eftir sinn dag, en hann má ekki selja hana. ákvæði þessara I. tryggja það, að verðskrúfan geti ekki náð tangarhaldi á þessum jörðum. Ég tel, að með þessum l. hafi Alþ. fundið þann meðalveg, sem hér er einn fær. Ég tel, að með þessum l. hafi tekizt að gera leiguábúðina gömlu þannig, að hún hafi alla kosti sjálfseignar, auk þess sem hún hefur kosti leiguábúðarinnar. Ég tel, að hvor tveggja þessara l. hafi til sins ágætis nokkuð, þau koma í veg fyrir síhækkandi jarðaverð, og það er þeirra aðalkostur. Það hefur af ýmsum verið fundið leiguábúðinni til foráttu meðal annars, að með því fyrirkomulagi vari verið að flytja sósíalismal inn í landið, þetta væri sósíalistiska fyrirkomulag. Mér er að vísu alveg sama, hvort menn kalla þetta sósíalisma, en hitt er alveg víst, að sósíalismi á ekkert skylt við þetta mál, því að það mætti miklu frekar segja, að kapitalistískur atvinnurekstur hafi verið rekinn á þessum ríkisjörðum frá 1906–1930. Halldór á Hvanneyri rak gróðavænlegan búskap á þeim árum, svo að ég hygg, að hvergi á landinu hafi verið rekinn búskapur með stórkapitalistiskara sniði heldur en einmitt þar. En ég efast um, að nokkrum sjálfseignarbónda hafi þótt vænna um jörðina sína heldur en Halldóri þótti um Hvanneyri. Þetta sýnir, að það þarf ekki að vera neinn sósíalismi, þó, að ríkið eigi jarðirnar. En jarðirnar verða að vera búhæfar fyrir íslenzka bændur vegna verðsins.
Í gr. þessa frv. er minnzt á l. um jarðakaupasjóð ríkisins. Frv. að þeim l. var borið fram af mér og hv. 2. þm. N.-M. 1936. Ástæðan til þess, að við bárum þetta frv. fram, var sú, að það kom í ljós, eftir landbúnaðarkreppuna 1932, þegar bændur áttu að fá hjálp í gegnum kreppulöggjöfina, að bændur stóðu í sömu sporum eftir sem áður. Margir fengu að vísu uppgjöf á sínum Skuldum, en töldu það samt skyldu sína að greiða þær eftir því sem getan leyfði. af þessum ástæðum var það sýnt, að margir bændur mundu flosna upp af jörðum sínum, ef ekki yrði að gert. Var því sú löggjöf, sem ég áður gat, um jarðakaupasjóð ríkisins samþ., og tóku þá margir bændur að selja ríkinu jarðir sínar. Nú hefur það sýnt sig, að þessi löggjöf hefur orðið ein hin vinsælasta, sem komið hefur verið á fyrir íslenzka bændastétt hin síðari ár. Það hefur verið keppzt um það af bændum að koma jörðunum til jarðakaupasjóðs með þeim kjörum, sem hann veitir, það hefur verið keppzt um það eins og þegar sótt er um góð embætti. Og margir þeirra manna, sem áður börðust gegn málinu., þeir hafa nú gengið fram fyrir skjöldu um það, að jarðakaupasjóður keypti jarðirnar af ýmsum þeirra skjólstæðingum, og hafa hjálpað þeim til þess að verða þeirra hlunninda aðnjótandi, sem jarðakaupasjóður veitir. Þessi löggjöf um jarðakaupasjóð hefur þannig bjargað mörgum bóndanum frá því að flosna upp af jörðinni og um leið fært þeim og börnum þeirra, sem þannig var ástatt um, trygga ábúð á jörðinni í framtíðinni sem væri það eignarjörð.
Þannig hafa bændur skilið það, að með jarðakaupasjóði og ábúðarlögunum er fundið ábúðarfyrirkomulag, sem mun vera eitt hið hagstæðasta, sem hægt er að búa til fyrir íslenzka bændur og íslenzka bændastétt. Ég tel því, að það sé mjög misráðið að gera nokkrar þær breyt. á þessum l., sem gætu haft það í för með sér, að þessar jarðir fengju á sig þá verðskrúfu, sem átt hefur sér stað um þar jarðir, sem gengið hafa kaupum og sölum manna á milli. Ýmsir þeir menn, sem selt hafa jarðir sínar jarðakaupasjóði, mundu nú kannske óska eftir að hafa jarðir sínar lausar til þess að geta grætt á því að selja þær öðrum bændum, — það get ég skilið, — en hins vegar álít ég, að Alþingi Íslendinga eigi að hafa vit fyrir þessum mönnum. Ég tel, að séu einhverjir ágallar á l. um erfðaábúð og óðalsrétt, eigi að reyna að breyta úr því og gera l. sem gallaminnst. Ég tel, að það eigi ekki að hrapa að því að auka tölu þeirra jarða, sem liggja undir verðskrúfunni. Mér dettur hins vegar ekki í hug, að gerðar séu sérstakar ráðstafanir framar því, sem ýmsir einstaklingar óska, til þess að ríkið sölsi undir sig jarðir einstakra manna.
Það er tekið fram í þessu frv., að ef bóndi eða ættmenn hans hætta ábúð á jörðinni næstu 10 ár, eftir að sala fer fram, skuli jörðin falla til ríkisins með sama verði og hún var keypt fyrir. Ég gæti að vissu leyti hugsað mér, að jarðeignir ríkisins væru seldar, ef það væri tryggt, að jarðirnar yrðu aldrei seldar yfir fastergnamatsverði. En það er ákaflega hætt við, að í kringum það yrði farið, nema því aðeins, að ríkið tæki sölu- og ráðstöfunarréttinn af viðkomandi aðilum og annaðist söluna með tilstyrk sveitarfélagsins fyrir fasteignamatsverð. Öðrum ákvæðum l. tel ég, að mætti e.t.v. ganga frá á þennan hátt, þannig að ekki hlytist tjón af, en alls ekki á. annan hátt.
Mér þótti rétt að láta þessi orð falli um málið nú við 1. umr.