22.01.1943
Neðri deild: 40. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 401 í C-deild Alþingistíðinda. (3211)

107. mál, sala á jarðeignum ríkisins

Flm. (Jón Pálmason):

Mér kom það ekki að neinu leyti á óvart, þó að gegn þessu frv. risu upp þeir menn hér í þinginu, sem hafa á stefnuskrá sinni, að ríkið eigi að eiga allar jarðir, til sjávar og sveita. Þær ræður, sem haldnar hafa verið, eru ekki nema eðlilegt áframhald af því, sem á undan er gengið af hálfu þeirra manna, sem tekið hafa til máls úr þeim flokkum, sem fylgja þeirri stefnu.

Hv. þm. Mýr. hélt hér alllangan fyrirlestur um jarðeignamál og landbúnaðarmál, sem að ýmsu leyti kom þessu máli við og að ýmsu leyti ekki, og margt var þannig, að enginn ágreiningur á sér stað um það, m.a., að það teljist ógæfa fyrir landbúnaðinn, þegar verðhækkun verður á fasteignum. Þetta er almennt viðurkennt og þarf ekki neinar rökræður þar um. Þetta frv., sem hér er til umr., tekur þetta fullkomlega til greina, því að þar er ekki talað um sölu á jörðunum til annarra en ábúenda — til þeirra, sem búa á jörðunum — og við fasteignamatsverði. Þá er hér, eins og hv. þm. hafa tekið eftir, tekið fram, að þær fasteignir, sem seldar eru, skuli komast undir óðalsréttarákvæðið, en þeir menn, sem ekki vilja sætta sig við það ákvæði, eiga þess kost að fá að kaupa býli sín eigi að síður. Þá má ekki selja hærra verði og ekki til annarra en sinna nánustu næstu 10 ár. 10 ár er það takmark, sem miðað er við vegna verðbreytinga, en ef menn telja betra að hafa tímatakmarkið hærra, getur það komið til athugunar í n.

Ég vil segja hv. þm. Mýr. það, að ég er á allt annarri skoðun en hann um mismuninn á því að komast undir ákvæðin um erfðafestu og óðalsrétt og að vera leiguliðar ríkisins. Reynslan hefur sýnt það, að það hefur gengið mjög erfiðlega fyrir alla, sem á ríkisjörðum búa, að fá að byggja á jörðunum. Þeir hafa staðið í stimabraki með að fá styrki til húsabóta, og staðið verr að vígi heldur en þeir, sem á sjálfseignarjörðum búa, og enn þá er uppi sú ósk hjá þeim, sem á ríkisjörðum búa, að þeir hafi frjálsar hendur til þess að gera þær bætur á jörðunum, sem þeir telja nauðsynlegar.

Ég ætla ekki að fara út í að ræða um jarðakaupasjóð. Ég var andvígur honum frá upphafi og álít, að aðrar leiðir hefði átt að fara til þess að bjarga bændum en að lokka af þeim jarðirnar. Þó var það svo, að margir óskuðu eftir að komast undir þessi ákvæði jarðakaupasjóðs, vegna þess að það var betra fyrir þá til þess að komast út úr þeim kröggum, sem þeir voru komnir í fyrir aðgerðir ríkisvaldsins. Að öðru leyti fáum við hv. þm. Mýr. tilefni til þess að ræða þetta í landbn. og þau ágreiningsatriði, sem kunna að vera okkar á milli, og skal ég ekki fara nánar inn á það; en vildi svara hv. 2. þm. Reykv. (EOl) og hv. 2. þm. N.-M. (PZ). Hv. 2. þm. Reykv. talaði um það, að við flm. þessa frv. gerðum ekki ráð fyrir neinni landbúnaðarkreppu hér eftir. Þetta er misskilningur hjá hv. þm. og kemur auk þess ekki þessu máli við. Ef hægt er fyrir hlutaðeigandi ábúendur að ná eignarhaldi á jörðunum á meðan stríðið stendur, standa þeir heldur betur að vígi eftir stríðið, og það er vissulega ekki ætlun okkar flm., að nokkurn tíma yrði aftur farið að herða á þeim ákvæðum, sem leiði til þess, að ríkið kaupi meira af jörðum en það hefur þegar gert, því að það á að okkar áliti að gera aðrar ráðstafanir til þess, að landbúnaðurinn geti borið sig heldur en að ríkið sé að sælast eftir að eignast allar jarðir hlutaðeigandi bænda, enda sannar reynslan það fram að þessu, að ríkið varast að sinna þeirri umbótaþörf, sem er á þeim jörðum, sem það á sjálft, og þess vegna er það svo, að umbætur, bæði í húsbyggingum og öðru eru minni á þessum jörðum en almennt gerist. Það er annað atriði sérstaklega, sem kom fram hjá hv. 2. þm. Reykv., sem ástæða er til að víkja að, það að gerðar verði ráðstafanir til þess að hlutaðeigandi ábúendur geti fengið keyptar þær jarðir, sem eru einstaklingseign. Við því eru engin bönn. Það er frjáls sala og frjáls kaup á þeim jörðum, sem eru einstaklings eign. Það gæti orðið samkomulag um það, að ábúendur gætu fengið jarðeignir keyptar með betri kjörum en á frjálsum markaði, og er það mál út af fyrir sig til athugunar, því að það er ekki síður ástæða til þess, að þeir, sem búa sem leiguliðar, geti fengið eignirnar keyptar en þeir, sem búa á opinberri eign. Aðalatriðið er það, að með því að bændur sjálfir eigi jarðirnar eru meir i líkur til, að þeir verði kyrrir á sinni eigin eign en annars. Önnur atriði í ræðu þessa hv. þm. sé ég ekki ástæðu til að hirða um.

Ég kem þá að hv. 2. þm. N.-M., en veit þó ekki nema hann sé farinn burt. Það var ekki óeðlilegt, þó að hann risi upp, þegar farið var að tala um að selja ríkiseignirnar, því að það er kunnugt um þennan hv. þm., að hann hefur verið forustumaður fyrir því, frá því fyrsta, að hann fór að hafa áhrif að reyna að koma jarðeignunum undir ríkið og reyna að rýra rétt bænda til eigna sinna. Það er kunnugt, að hann var forustumaður í því, að 17. gr. var á sínum tíma sett inn í jarðræktarlögin og hefur yfirleitt í ræðu og riti verið forustumaður í því að koma málum sjálfseignarbænda fyrir kattarnef. En nú er það svo undarlegt, að þessi hv. þm. hefur fremur kosið að eiga sitt eigið hús en að verða leiguliði hjá bændum eða öðrum. Eins og venjulega hjá öfgamönnum er algert ósamræmi hjá honum á milli þess, sem hann vinnur fyrir hið opinbera, og þess, sem hann gerir í einkalífi sínu.

Það, sem þessi hv. þm. talaði um, að við vildum meta meira stundarhag fárra manna en framtíðarhag þjóðfélagsins, var sagt út í hött. Það er ekki aðeins stundarhagur núverandi ábúenda, sem styrkjast mundi við það, að þeir eignuðust jarðir sínar, heldur einmitt þjóðarhagurinn í framtíðinni. Það var líka út í hött, sem hann sagði um ástæður okkar til að miða þá. skuldbinding við 10 ár, að ekki megi selja þessar jarðir frjálsri sölu. Við gerum ráð fyrir, að eftir þann tíma verði allt komið í sæmilegt jafnvægi og ró eftir þetta stríð og sú verðhækkun, sem það hefur valdið á jörðum, og öðru í okkar þjóðfélagi, um garð gengin. Ef 10 ára tímabil þykir of stutt, er til athugunar að lengja það, og þm., hefur enga ástæðu til að saka okkur um þröng sjónarlnið í því efni.

Bæði hv. þm. Mýr. og hv. 2. þm. N.-M. hafa undanfarið unnið að jarðamati landsins alls. Þeirra niðurstaða er að vísu sú, að þeir hafa lækkað jarðirnar, svo að þetta er lægsta jarðamat, sem verið hefur, en hækkað hús í kaupstöðum, og þótt mér þyki það að sumu leyti ósamræmi, þá ættu þeir á eftir sízt að kalla það uppsprenging á jarðaverði, þótt jarðir séu seldar ábúendum við því fasteignamatsverði, sem þeir hafa metið sjálfir.

Málið liggur ljóst fyrir. Þegar það kemur til athugunar í landbn., getur brátt komið í ljós, hvort þar eru einstök atriði eða ágallar, sem breyta þyrfti til batnaðar með samkomulagi. En hitt er ekki undarlegt, þó að mismunandi stefnur komi nokkuð í ljós í sambandi við þetta frv.