05.04.1943
Neðri deild: 90. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 436 í C-deild Alþingistíðinda. (3276)
122. mál, tímarit til rökræðna um landsmál
Sveinbjörn Högnason:
Herra forseti. — Ég get ekki látið hjá líða að segja örfá orð, þó að ég hafi því miður ekki getað hlustað á allar þær umr., sem fram hafa farið um málið.
Mér skilst, að tilgangur þessa frv. sé helzt sá, ef nokkur er, að hv. þm. finni til þess, að misjöfn sé aðstaða manna til þess að láta skoðanir sínar í ljós eftir því, hvar þeir eru staddir í flokki eða eftir skoðunum í landsmálum, og þess vegna sé rétt að jafna þessa aðstöðu til áhrifa í landsmálum gegnum hið ritaða mál. Það má vera, að nokkuð sé rétt í þessu. Því að fjársterkustu flokkarnir hafa bezta aðstöðu til þess að gefa út blöð og tímarit. En vitanlega mun tímarit, sem kemur út fjórum sinnum á ári, ekkert geta bætt úr þessu misræmi. Því að af allri útgáfustarfsemi í landinu er langhægast að gefa út tímarit. Og enginn flokkur í landinu mun vera svo, að hann sé ekki megnugur þess að halda úti tímariti, sem kemur út fjórum sinnum á ári. Og ef það er tilgangurinn að jafna áhrifaaðstöðu flokkanna, þá er heldur ekkert vit í öðru, ef á að stíga það spor til fulls, en að ríkið taki að sér útgáfu dagblaðanna. Því að blöðin bera mest af lýgi til kjósenda daglega, og það er dropinn, sem holar steininn, blöðin, sem daglega koma út. Og ef daglega er haldið fram lýginni og rangfærslunum, þá er þessi tilraun, sem hér er talað um, gersamlega gagnslaus. Ef þess vegna ætti að snúa inn á þá leið, sem ég fyrir mitt leyti gæti myndað mér, að ætti að taka til athugunar, að ríkið hefði yfirleitt útgáfustarfsemi blaða með höndum, þá verður að byrja á því að jafna þessa aðstöðu þar, sem sumir hafa þá aðstöðu að geta gefið út sín prívat blöð til þess að hafa áhrif á fjöldann. Og meðan aðstaðan er svo misjöfn til blaðaútgáfu í landinu eins og raun er á, þá er gagnslaust, þótt eitt lítið tímarit sé gefið út, sem eigi að hafa einhver áhrif í þessu efni. Það mundi hverfa eins og dropi í hafið, að ég hygg, í samanburði við allan þann áróður, sem fram fer gegnum hið prentaða mál hér á landi. Ef á að koma því fram, sem virðist vera tilgangur þessa frv., að draga úr því misrétti, sem nú er um það að koma fram skoðunum í stjórnmálum, þá virðist auðsætt, að byrja verður á þeim endanum, þar sem misréttisins gætir mest, vegna þess ef það er ekki gert, þá er sýnt, að þetta er ekki annað en aðeins látalæti, sem hér er á ferð, og mundi ekki hafa hina minnstu þýðingu í þá átt, sem hv. flm. vilja vera láta. Og með útgáfu slíks rits sem þessa mundi verða létt mest undir með þeim mönnum, sem geta beitt peningavaldi sínu til daglegrar blaðaútgáfu, með því að með þessu yrði þeim gefið nýtt tímarit í viðbót, sem hinir flokkarnir kosta til jafns við þá. Því að þeir, sem hafa blaðakostinn mestan, geta áréttað jafnt og þétt það, sem þeir hafa gefið út í þessu tímariti. hvort sem það er satt eða logið. Því að hverjum dettur í hug, að í slíku tímariti muni alltaf veiða vandaður ritháttur? Og það væri möguleiki fyrir þessa efnaðri menn, sem sterkasta hafa aðstöðuna til þess að reka áróður í hinu prentaða máli, til þess að bæta enn aðstöðu sína að því leyti að ná til fólksins með áróður sinn. Það yrði langmestur gróði fyrir þá að fá slíkt tímar it, til þess svo að geta á eftir hamrað á því, kannske í tugum dagblaða, sem þeir hafa birt í þessu tímariti, sem aðrir, sem standa að þessu tímariti, hafa e.t.v. enga aðstöðu til að gera.
Ef það ætti að athuga þetta frv. og fara eftir stefnu þess, þá ætti vitanlega að byrja á þeim rétta enda í þessu efni, þ.e. að ríkið tæki að sér útkomu dagblaðanna og ræki þau á þessum grundvelli, sem i frv. er stungið upp á. Og síðan gæti komið til athugunar, hvort eðlilegt væri og skynsamlegt að halda áfram á svipaðri leið. Fyrst ætti að taka öll blöð í hendur ríkisins. Þá yrðu þau blöð að hætta, sem eru stærst. Þá yrði að láta allar stefnur og flokkssjónarmið fá jafnrétti. Og ef samþ. verður eitthvað af þessu frv. við þessa umr., mun ég bera fram brtt. við 3. umr. málsins í þessa átt, að þetta komist inn á þá braut, sem vitandi eða óvitandi virðist vaka fyrir hv. flm. með þessu frv.