28.01.1943
Sameinað þing: 16. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 13 í D-deild Alþingistíðinda. (3281)
27. mál, beitumál vélbátaútvegsins
Frsm. (Sigurður Þórðarson):
Herra forseti. Allshn. hefur athugað þessa þáltill. og leggur til, að hún verði samþ. með ofurlítilli orðalagsbreyt., sem liggur fyrir í nál. á þskj. 170. Þetta er engin efnisbreyt., heldur er till. aðeins færð í þann búning, sem allshn. telur, að heppilegri sé. Þetta er þarft mál, og er n. á einu máli um að leggja till. að það nái fram að ganga.