26.02.1943
Neðri deild: 67. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 446 í C-deild Alþingistíðinda. (3301)
143. mál, meðalalýsi
Emil Jónsson:
Herra forseti. — Hv. þm. Ísaf. telur það höfuðrök gegn till. okkar í rannsóknaráðinu, að afgreiðsla lýsis verði margbrotnari með því að samþykkja málið eins og við lögðum til, þ.e. ef einu útflutningsgjaldinu er bætt við enn. Það er að vísu rétt, að gjöldin eru nóg fyrir. En ég tel, að afgreiðsla pappíranna þurfi ekki að verða miklu flóknari, þó að frv. hefði verið samþ. eins og það var fram sett af rannsóknaráði. Prósenttalan, sem tekin hefði verið, hefði verið því brotinu hærri, en svo er það búið. Og ég tel, að þeim, sem fást við þessa innheimtu, mundi veitast mjög auðvelt að reikna út þessa viðbót á útflutningsgjaldinu. Og þegar menn, sem eiga að greiða þetta, eru búnir að sætta sig við að greiða rað, hélt ég, að Alþ. vildi ekki taka af þann möguleika til þess að gera þetta. Formaður sölusambands lýsisframleiðenda var aðalfrumkvöðull að flutningi þessa frv. og óskaði að hafa það á þann hátt, sem það fyrst kom fram. Hins vegar hygg ég, að þótt frv. sjútvn., sem hér liggur fyrir, verði samþ., þá sé ekki trygging fyrir, að tilgangi frv. verði náð, því að í frv. felst aðeins heimild til þess að láta þessa rannsókn fara fram. En nú er ekki fé ætlað neitt í fjárl. í þessu skyni, og ég er því í vafa um, að hæstv. ríkisstj. muni fyrirskipa rannsókn á lýsi á þennan hátt, þó að frv. þetta yrði samþ., þar sem ekki er fjárveiting fyrir hendi til þess. Hin leiðin væri öruggari til þess að framkvæmd málsins væri tryggð, og yrði að betri notum. Því að það gæti verið tilhneiging fyrir þá, sem lítið lýsi hafa og fyrirfram telja sig vita, að rannsókn mundi engan árangur hafa, að skjóta sér undan því að láta rannsaka vöru sína.
Ég leyfi mér að ítreka þau tilmæli mín, að sjútvn. sjái sér fært að tala við þessa aðila alla, sem í hlut eiga, áður en málinu er ráðið til lykta. Vona ég, að hv. n. hafi ekkert á móti því.