18.12.1942
Neðri deild: 21. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 19 í D-deild Alþingistíðinda. (3313)

68. mál, vegagerð og símalagning

Helgi Jónasson:

Ég ætla ekki að fara að bæta neinu við það, sem þegar er búið að segja, en vil bara segja það, að það er gott og enda nauðsynlegt, að þeir menn, bæði vegamálastjóri og póst- og símamálastjóri, skuli hafa hug á því að vilja fylgjast með í þessum efnum. Eigi að síður er ég því sterkt fylgjandi, að Alþ. láti sjá, að það hafi opin augun í þessum málum og komið auga á nauðsyn þess, sem í þáltill. felst.

Legg ég því eindregið til, að till. verði samþ., en umr. frestað og málinu vísað til samgmn.