05.01.1943
Efri deild: 24. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 451 í C-deild Alþingistíðinda. (3346)

64. mál, Vesturheimsblöðin Heimskringla og Lögberg

Flm. (Jónas Jónsson):

Í grg. fyrir frv. er bent á þær ástæður, er liggja fyrir því, að þetta frv. er fram borið, og þarf ég ekki mikið um frv. frekar að segja eins og stendur fram yfir það, sem tekið er fram í grg.

Tilgangurinn með frv. þessu er í fyrsta lagi sá að styðja Vesturheimsblöðin með því að afla þeim allmargra kaupenda hér á landi, og í öðru lagi sá að gefa fólki hér á landi tækifæri til að kynnast dugnaði og myndarskap landa vorra vestan hafs og þeirri menningarbaráttu, er þeir hafa háð allt fram á þennan dag, sem okkur er til varanlegrar sæmdar.

Hún er að mörgu leyti mjög merkileg, saga Vestur-Íslendinga á liðnum tímum og merkilegri en við getum gert okkur grein fyrir í fljótu bragði. Sagan um það, hvernig landar vorir fluttust vestur um haf út af erfiðum kringumstæðum heima fyrir og brutust þar áfram af frábærum dugnaði án þess, að þeir gætu fengið nokkurn stuðning að heiman. Og þeir sendu meira að segja peninga heim. Eitt gleggsta dæmið um það er, hvernig þeir studdu Eimskipafélag Íslands, er það var stofnað, með fjárframlögum án þess að eiga von á nokkrum hagnaði í aðra hönd. En þetta sýndi, að þeir héldu tryggð við landið og vildu styðja það með ráðum og dáðum.

Þeirra andlega líf var aðallega í sambandi við kirkjulífið, og varð það snemma blómlegt. Gátu þeir ekki á annan hátt betur haldið áfram víðtækri íslenzkri menningarstarfsemi. Þegar bezt lét, starfræktu þeir um 80 kirkjur með frjálsum framlögum. Kirkjurnar voru að vísu litlar, en kirkjan í Winnipeg er þó það stór, að engin kirkja á Íslandi mun vera jafndýr og vegleg sem hún.

Annar þátturinn í andlegu starfi landa vorra vestra eru blöðin, og voru þau a.m.k. fyrir framan af mjög tengd kirkjunni, þar sem annað blaðið tilheyrði þeim konservativari undir forustu Jóns Bjarnasonar, en hitt blaðið þeim frjálslyndu undir forustu Friðriks Bergmanns. Nú orðið er lítill trúarágreiningur milli blaðanna, en kunnugir menn segja þó, að blöðin þurfi að vera tvö, þar sem af því skapist meira líf og meiri fjölbreytni en ella. En hins vegar eiga blöðin við mikla fjárhagslega erfiðleika að stríða, þó að þau séu studd árlega og mjög myndarlega af þjóðlegum forgöngumönnum vestra. Þetta á að miklu leyti orsök sína í því, að alltaf fækkar sí og æ eldri kynslóðinni, því fólki, sem þráir að fylgjast með gangi mála á Íslandi og fá fréttir af högum manna, ættingjum og vinum. Nú er svo komið, að í öðru blaðinu eru farnar að birtast greinar á ensku, og kemur það auðsjáanlega til af því, að yngri kynslóðin missir meira og meira áhuga á því að fylgjast með íslenzkum málum og málefnum, og íslenzka tungan verður þeim ekki eins hjartfólgin og minnisstæð, eins og við er að búast, þar sem allt fer fram á ensku í kringum yngri kynslóðina, þó að hún skilji meira eða minna í íslenzku. En þó að svo sé ástatt, eru menn sammála um það, að blöðin eigi að vera tvö, en af því leiðir aftur, að erfiðleikarnir á að halda þeim báðum gangandi eru miklir og meiri eftir því, sem tímar líða.

Ásmundur Jóhannsson, sem er, eins og kunnugt er, einn af ötulustu talsmönnum þjóðræknismálanna meðal landa vorra vestan hafs og hefur lagt mikið á sig fyrir málefni vor, sem m.a. má marka af því, að hann hefur komið 8 sinnum til Íslands og í ein 6–7 skipti á sinn eiginn kostnað til þess að sækja fundi Eimskipafélags Íslands, hann hefur farið fram á það við okkur, að við öfluðum blöðunum kaupenda hér heima, þeim til styrktar og útbreiðslu. Að athuguðu máli hef ég lagt til, að farin yrði leið sú, er í frv. felst, þar sem erfitt yrði á annan hátt að gera nokkuð svo að um munaði og æskilegum árangri yrði náð.

Það væri og mjög ákjósanlegt við lestur þessara blaða fyrir okkur hér heima, að blaðinu fylgdi eins konar handbók til skýringar á mönnum og málefnum landa vorra vestan hafs. Yrði þetta þá nokkurs konar alfræðiorðabók um Vestur-Íslendinga fyrir kaupendur blaðanna hér heima, sem gæti orðið til ómetanlegs skilningsauka á baráttu landa vorra vestan hafs, sem þeir hafa háð í Vesturheimi, sér og okkur hér heima til vegs og virðingar. En það er trú mín, að Íslendingar í Norður-Ameríku hafi framar öllum öðrum þjóðum þar sýnt samhug og ræktarsemi í því að vilja varðveita og halda við íslenzku þjóðerni og öðru því, sem þjóðlegt er og gott í fari okkar hér heima á Íslandi. Það minnsta, sem við getum gert, er að reyna að styrkja þá í þessari viðleitni, og ég vænti þess, að hv. d, láti ekki sinn hlut eftir liggja og leggi frv. þessu lið sitt, til þess að það geti orðið að I.