05.01.1943
Efri deild: 24. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 455 í C-deild Alþingistíðinda. (3352)
64. mál, Vesturheimsblöðin Heimskringla og Lögberg
Haraldur Guðmundsson:
Þessi seinustu ummæli hv. síðasta ræðumanns, að Tíminn sé mikið lesinn meðal kaupmanna og útgerðarmanna, hygg og að séu sönn, a.m.k. nú síðustu dagana. Hitt skal ég alveg láta ósagt, hversu bætandi áhrif hann hefur haft á þessar stéttir.
Um frv., er hér liggur fyrir til umr., vil ég taka það fram, að ég mun fylgja því til 2. umr., en þó ekki lengra óbreyttu.
Ég hef oft dáðst að hugkvæmni hv. þm. S.Þ., og það þarf vissulega mikla hugkvæmni til að láta sér detta í hug að fara þá leið, sem ætluð er í frv. þessu til að útbreiða og styrkja Vesturheimsblöðin, Heimskringlu og Lögberg hér á landi. Ég get ekki neitað því, að mér þykir líklegt, að allur þorri manna liti á þessa leið sem óeðlilega ráðstöfun, og mér er næst að halda, að slík ráðstöfun sem þessi kæmi til með að verka þveröfugt við það, sem hv. flm. frv. hefur í huga að verði, ef þetta frv. nær óbreytt fram að ganga. Þess vegna álít ég, að það beri að fara aðrar leiðir en hér er gert ráð fyrir með frv. þessu.
Einn aðili kemur til greina í þessu sambandi, en hann er Þjóðræknisfélagið, sem starfar einmitt að þessum málum, og væri eðlilegast, að það fengi þetta mál til meðferðar, þar sem það stendur bezt að vígi til þess að útbreiða blöðin. Sjálfsagt er, að skólar, félög og einstaklingar fái eintök af blöðunum til lestrar, þó að ekki sé farið að því með l. eins og hér er gert ráð fyrir.
Ég mun, eins og ég sagði áðan, greiða frv. atkv. til 2. umr., en vænti, að því verði þá breytt í samræmi við þá hugsun, er að baki því liggur, og þannig, að samkomulag náist um málið.