08.01.1943
Sameinað þing: 14. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 23 í D-deild Alþingistíðinda. (3355)

46. mál, flugmál Íslendinga

Flm. (Sigurður Bjarnason):

Það er náttúrlega mjög illt til þess að vita, að hv. alþm. skuli sækja svo slælega fund, að hæstv. forseti skuli þurfa að eiga í harmkvælum alllengi út af því. Ég sé ekki ástæðu til að amast við þessari uppástungu hv. 1. þm. Árn., en vil einungis bera fram þá ósk, að þó að þessi háttur verði á hafður, þá megi það ekki verða til þess að tefja fyrir afgreiðslu málsins.