28.01.1943
Sameinað þing: 16. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 23 í D-deild Alþingistíðinda. (3358)

46. mál, flugmál Íslendinga

Frsm. (Gísli Jónsson):

Herra forseti. — Ég vil lýsa yfir því, að ég er allshn. algerlega sammála, og legg því til, að þm. afgreiði málið samkv. brtt. 153.

Ég þarf ekki að ræða þetta mál, því að enginn ágreiningur hefur orðið í n. En síðan málið var rætt, hefur komið fram brtt. við brtt., og er hvín á þskj. 166. Vil ég lýsa yfir, að n. hefur ekki haft tækifæri til að ræða þessa brtt., og vil ég mælast til þess, að hæstv. forseti fresti umr. Þar sem ýmislegt er athyglisvert við þessa brtt., tel ég æskilegt, að n. fái ráðrúm til að athuga hana, áður en lengra er farið.