09.02.1943
Sameinað þing: 23. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 26 í D-deild Alþingistíðinda. (3369)

46. mál, flugmál Íslendinga

Páll Zóphóníasson:

Herra forseti. — Eins og hv. frsm. skýrði frá, hafa nm. í allshn. óbundnar hendur við atkvgr. um brtt. á þskj. 166, hvort þeir verða með henni eða móti. — Ég lít svo á, að sú stefna, er með þeirri brtt. kemur fram, sé í meginatriðum rétt og að það sé mjög athugandi fyrir Alþ. að ganga inn á þá braut að eiga verulegan hluta af hlutafé flugfélags Íslands og vera þar í samstarfi við áhugamenn flugmálanna. Það hefur verið lagt til, að þetta yrði gert nú þegar, en ég skal viðurkenna, að það er vafamál, hvort þróun þessara mála sé komin á það stig, að gera eigi þetta nú á þessu þingi. Þetta atriði á að athuga í sambandi við styrkinn, sem veittur er á fjárl. til þessarar starfsemi, þannig að þessi styrkur verði veittur t.d. sem viðbótarframlag í hlutafélagið. En ég tel það hæpið, að þróun þessara mála sé svo langt komið, að það beri að stíga þetta spor nú. Ég er því hlynntur, að þetta spor verði stigið út og peningar til þessara mála verði veittir sem hlutafé, en ekki sem styrkur.

Ég vildi láta þessa afstöðu mína koma hér fram í þessu máli. Á nefndarfundum, er þetta var rætt, var ég ekki ákveðinn í, hvaða afstöðu ég mundi taka til þessarar brtt., og því vildi ég nú, að þessi afstaða mín kæmi fram, að ég er í raun og veru með till., en tel það aðeins tímaspursmál, hvenær eigi að stíga þetta spor út.