09.02.1943
Sameinað þing: 23. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 28 í D-deild Alþingistíðinda. (3374)

46. mál, flugmál Íslendinga

Sigurður Bjarnason:

Herra forseti. — Ég ætla mér ekki að lengja umr. um þetta mál. Það hefur komið hér fram brtt. á þskj. 166, og út af henni hafa hafizt umr. um atriði, sem, eins og hv. 2. þm. S. M. tók fram, er naumast tímabært. Það er atriði út af fyrir sig, hvaða stefnu á að hafa í þessum málum, í fyrsta lagi, hvort á að hafa þann hátt á að skapa ríkinu möguleika til að eiga meiri hluta af hlutafé fyrirtækisins, eða í öðru lagi, hvort flugmálin á að reka áfram á þeim grundvelli, sem þau hafa verið byggð á til þessa hér á landi. Ég játa, að þetta er ekki aðalatriðið að svo komnu máli. Meginatriði þáltill. er ekki um þetta. Ég hygg því, að þau tilmæli, sem fram hafa komið hjá hv. þm. N.-Þ. og hv. 2. þm. S.-M., um að fella niður síðasta liðinn, þurfi ekki að koma í bága við vilja okkar flm. till., þ.e.a.s. að sú almenna stefnuyfirlýsing, að ríkissjóður veiti flugmálum landsins í heild öflugan stuðning, sé látin standa, en niður falli fyrirheit um að styrkja Flugfélag Íslands. Ég hygg, að á þeim grundvelli gæti orðið samkomulag.

Ef hæstv. forseti vill fresta þessu máli, gæti verið hægt að laga þetta. Ég sé svo ekki frekari ástæðu til að ræða brtt. á þskj. 166. Ég sé ekki betur en hún sneiði nokkuð að hlutafélögum. En eins og þingheimur veit, má enginn hluthafi fara með meira en 1/5 hluta atkv. Brtt. virðist koma í bága við þann lagabókstaf. En hins vegar, þar sem hv. þm. N.-Þ. segist vilja taka brtt. til baka, ef síðasta mgr. þáltill. er felld niður eða henni breytt, þá mælist ég til, að málinu verði frestað, svo að hægt sé að koma sér saman um brtt.