09.02.1943
Sameinað þing: 23. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 28 í D-deild Alþingistíðinda. (3376)
46. mál, flugmál Íslendinga
Gísli Sveinsson:
Herra forseti. — Ég er alveg á sama máli og þeir, sem hafa talað hér á undan mér um þetta síðasta ákvæði í till., eins og hún kemur fyrir á þskj. 153. Það er ekkert í því nema það, sem að svo stöddu er óþarft að ræða, þótt að öðru leyti megi teljast til bóta.
Þetta er þannig, að vel mætti breyta því. Það er ekki um neitt keppikefli að ræða. Mér skilst, að hér sé um svo lítið atriði að ræða, að gera megi skrifl. brtt. þegar í stað, og þarf þá ekki málið að tef jast vegna þessa litla ágreinings. Ef hv. þm. N.-Þ. vill fallast á það, að orðin „Flugfélag Íslands og“ séu felld úr síðustu mgr., þá þarf aðeins pennadrátt til að gera þessa breyt. Þá skilst mér, að hv. þm. mundi taka brtt. sína aftur, og þá er hún úr sögunni. En ef hann ætlar að halda brtt. til streitu eftir sem áður, þá horfir málið öðruvísi við. Ég vil aðeins spyrja, hvort aðrir nm. séu þessu sammála. (Nm.: Já.).