12.01.1943
Efri deild: 29. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 473 í C-deild Alþingistíðinda. (3390)
84. mál, menntamálaráð Íslands
Forseti (StgrA):
Út af fyrirspurn þeirri, sem hv. 6. þm. Reykv. beindi til mín sem forseta, vil ég taka fram, að samkv. 53. gr. þingskapa er það vitavert að tala óvirðulega um konunginn eða bera þingið eða ráðherra eða einhver n þingmanna brigzlyrðum. Samkv. þessu orðalagi þingskapanna, þá skilst mér, að þau nái ekki til þess að vernda utanþingsmenn, eins og reyndar er skiljanlegt, heldur aðeins til þeirra manna, sem þarna er talað um. Hins vegar vil ég sem forseti óska mjög eindregið eftir því, að hv. þm. allir hagi máli sínu með fullkominni virðingu fyrir þeim borgurum, sem utan þings eru, þó að það geti ekki farið sérstaklega eftir þingsköpum, heldur eftir siðgæðisvitund og kurteisi hvers þm.