18.12.1942
Sameinað þing: 11. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 54 í D-deild Alþingistíðinda. (3429)
36. mál, efling landbúnaðar
Kristinn Andrésson:
Ég þakka hv. þm. Mýr. (BÁ) fyrir góðar undirtektir undir þessa þáltill. Hins vegar verð ég að leiðrétta nokkurn misskilning, sem kom fram í ræðu hans. Hann telur, að farið sé fram á það í þáltill. að athuga möguleika til að færa byggðina saman í sveitum landsins. Þetta er mesti misskilningur, sem ég hef orðið var líka annars staðar. Í þáltill. er aðeins farið fram á, að samþ. verði, að fram fari rannsókn á því, hvar heppilegust eru skilyrði fyrir landbúnaðinn, þannig að skilyrði geti skapazt til þess, að byggðin síðar meir færðist saman. Hér er ekki verið að gera ráðstafanir til þess að færa byggðina saman á þann hátt, að sú byggð, sem er í sveitum landsins, verði lögð niður. En þróunin hefur verið sú á undanförnum árum, að byggðin hefur færzt af sjálfu sér saman, og hvað sem gert er, mun svo verða áfram. En það, sem að er, er, að fólkið, sem flytur úr strjálbýlinu, hefur hvergi að að hverfa nema í kaupstaðina.
Okkur flm. þáltill. er ljóst, að það verða að vera tvær stefnur samhliða í landbúnaðarmálum, í fyrsta lagi að hlynna að þeim einyrkjabúskap, sem fyrir er, og nýbýlabúskap, þannig að fólkið geti lifað við þann atvinnurekstur, og í öðru lagi, að það fólk, sem hlýtur að flosna upp í sveitunum, eigi athvarf í sveitunum sjálfum. Þess vegna þarf að skapa skilyrði til þess, að fólk, sem óhjákvæmilega hlýtur að fara úr strjálbýlinu, þurfi ekki að fara í kaupstaðina, heldur geti farið á aðra staði í sveit, sem betur eru fallnir til búskapar. — Ef hv. þm. Mýr. hefði lesið nógu vel grg. þáltill., þá hefði þessi misskilningur ekki þurft að koma fram í ræðu hans. En ég býst við, að margar af þeim rannsóknum, sem fram á er farið í þessari þáltill., að verði gerðar, séu komnar vel á veg hjá Búnaðarfélagi Íslands, þannig að þeir starfsmenn þess, sem hafa þessi mál með höndum, hafi rannsakað, hvar heppilegust skilyrði séu fyrir hendi fyrir framtíðarbúskap Íslands með nýju fyrirkomulagi. Og sérstaklega af ræðu búnaðarmálastjóra, sem hann flutti fyrir nokkrum dögum í útvarpið, skildist mér, að hann áliti, að það yrði því strax að vinda bráðan bug að því að koma upp. byggðahverfum í sveitunum, og að það vantaði í raun og veru ekki annað til þess en framlög frá ríkinu, en rannsóknir þar að lútandi hefðu að miklu leyti farið fram. Er því enn meiri ástæða til þess, að sem fyrst komi till. frá Búnaðarfélagi Íslands um þessi mál.