08.01.1943
Sameinað þing: 14. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 61 í D-deild Alþingistíðinda. (3444)

38. mál, verkleg framkvæmd efitr styrjöldina og skipulag stóratvinnurekstrar

Gísli Jónsson:

Ég hef athugað töluvert till. þá á þskj. 55, er hér liggur fyrir til umr., og borið hana saman við till. þá á þskj. 35, sem þegar er afgreidd, og komizt að raun um, að um er að ræða sömu málin á báðum þskj. að verulegu leyti. Því vil ég leyfa mér að beina þeirri fyrirspurn til hv. 1. flm., hvort það væri ekki heppilegra að samræma það verkefni, er n. kæmu til með að fá, þannig að öll sjávarútvegsmál á þskj. 35, svo og önnur skyld mál á þskj. 55 færu til sömu mþn. Mér fyndist það eðlilegast sjálfum og vildi því gjarnan heyra álit 1. flm. á því, áður en málið fer til allshn.

Annars vil ég benda á, að mér finnst þetta mál og undirbúningur þess ákaflega einkennilegur. Það virðist hér eiga sér stað kapphlaup um að koma hverju stórmálinu á fætur öðru fram að útliti til, en þegar betur er að gáð, t.d. með þetta mál á þskj. 55, þá hverfur það svo að segja inn í sjálft sig, þegar það er krufið til mergjar. Og þetta er því einkennilegra sem það eru næstum sömu mennirnir, sem standa að báðum þessum þskj., nr. 35 og 55.

Ég hef reynt að flokka málin eins og þau koma fyrir á þskj. 55, og verða þá fyrst fyrir rafmagnsmálin, en nú vill svo til, að einmitt þessi mál eru til athugunar og rannsóknar hjá mþn., og verður ekki séð, að þessi n. fái nokkru þar til leiðar komið fram yfir það, sem er á valdi mþn. í raforkumálum að gera.

Annar flokkurinn er svo sements- og áburðarverksmiðjur. Bæði þessi mál hafa áður verið athuguð í mþn., og er athuganir hennar að finna í riti, sem nefnt hefur verið „Rauðka“. Þar er að finna fróðleik, sem nauðsynlegur er til framkvæmda á þessu sviði, og að ekki hefur enn verið hafizt handa, mun fyrst og fremst hafa stafað af féleysi ríkissjóðs. Og fyrir utan þetta liggja fyrir nákvæmar rannsóknir af hálfu einstaklinga, svo að að þessu athuguðu hygg ég, að ekki muni bæta neitt, þó að ný n. verði sett á laggirnar til þess að rannsaka aðstæðurnar.

Þriðji flokkurinn er lýsisherzla og lýsishreinsun og athugun á byggingu verksmiðju í því skyni. Um þetta liggur fyrir skýrsla frá Trausta Ólafssyni. Var þetta mál rætt í Ed. í gær, og fannst mér flokkur framsóknarmanna sýna lítinn skilning á því máli. Þess utan er mál þetta komið í svo fastar skorður, að það mundi litlu breyta, þótt einhver n. yrði látin fjalla um það.

Fjórði flokkur er smíði og viðgerðir skipa. Um það er að segja, að ætlazt er til, að mþn., sem kjósa á samkv. þskj. 35, hafi þetta mál til meðferðar, og kemur það þá til greina, að því er mér virðist, að setja þennan lið til þeirrar mþn.

Fimmti flokkurinn er óskyldur málum þeim, sem á undan eru komin. Hann er ræktunarmál, ýmist í þorpum eða þá í nýju landnámi, þurrkun á landi. Svo og heyra hér undir byggingarmál, nýbýlamyndun, húsabyggingar o.fl. Öll þessi mál eru að meira eða minna leyti til meðferðar hjá Búnaðarfélagi Íslands, sem er eðlilegt og í samræmi við skoðun hv. 1. flm., þar sem hann sagði nýlega, að Fiskifélag Íslands ætti að sínu leyti að hafa jafnvíðtækt og mikið starfssvið í sjávarútvegsmálum og Búnaðarfélag Íslands í landbúnaðarmálum. Og finnst mér því það vera óeðlilegt og á móti skoðun hans að fara að rýra starfssvið búnaðarfélagsins með því að taka mál, er undir það heyra, og setja í mþn.

Í sambandi við þetta sérstaka mál vil ég biðja þá menn, er að þessu standa, að athuga, hvort ekki sé ráðlegra og viturlegra að eyða styrkjum til róttækra ráðstafana í málum þessum frekar en í athuganir og umþenkingar á þeim, hvort ekki sé einmitt nú orðið tímabært að ljá þessari hlið málsins meiri gaum en gert hefur verið.

Í sambandi við aukningu landbúnaðarins verður að gæta þess vandlega, að hann sé ekki aukinn fyrirhyggjulaust, þannig að selja þurfi afurðir hans með styrkjum úr ríkissjóði til annarra landa. — En tökum t.d. mjólkurframleiðsluna. Það er vitanlegt, að við gerum of lítið af því að neyta þeirrar hollu fæðu. Þessa fæðutegund má auka til muna, og það fyrirkomulag, sem á þeirri framleiðslu er nú, er alveg óviðunandi.

Sjötti flokkur er rannsókn á vegakerfi landsins, mál, sem algerlega heyrir undir vegamálastjóra, og yrði það mjög einkennileg aðferð að fela þau mál í hendur sérstakrar n., er hinn rétti aðili er til staðar. Varðandi þetta atriði vil ég leyfa mér að benda á, að þegar vegamálin voru hér til umr. fyrir skömmu, benti hv. 1. flm. þessa máls á, að stefna bæri að því að gera suma vegi að aðalbrautum. Það, sem hann sagði í því sambandi, hélt ég, að væri alveg nýjung, en síðar frétti ég, að vegamálastjóri hefði reynt að fá þessu sama komið á með samþ. frá Alþ., en ekki tekizt. Hvort allir aðrir flokkar en Framsfl. hafi verið á móti því, veit ég ekki, en þykir mér það þó ólíklegt.

Þá kem ég að sjöunda flokknum, en hann hljóðar um hafnargerð og lendingarbætur. En þetta eru mál, sem ætlazt er til, að n., sem skipuð sé samkv. þskj. 35, taki til athugunar, auk þess sem þau heyra einnig undir vitamál, og sé ég því enga ástæðu til þess að skipa sérstaka n. til að athuga þau.

Í þessu sambandi vil ég minna á, að of lítil athygli hefur verið veitt möguleikum fyrir því að gera örugga og trygga höfn á Suðurlandsundirlendinu. Það er ekkert atriði nú orðið, hvort það tekur 5, 10 eða 20 ár, heldur að málið sé undirbúið þannig, og að hvert dagsverk sé þannig unnið, að hægt sé að byggja á því í framtíðinni. Nú er liðinn aldarfjórðungur, síðan þetta mál kom fyrst á dagskrá, og mér skilst, að ekki standi á því, að það hafi ekki verið nægilega rannsakað. Það hefur staðið meira á getu en vilja þingsins til að hrinda þessu máli í framkvæmd en y skorti á rannsóknum.

Þá komum við að síðasta atriðinu í grg., en hún er um rekstrarfyrirkomulag atvinnurekstrar í stærri stíl. Ef aðaltilgangur þáltill. á þskj. 57 væri raunverulega sá að rannsaka, hvernig ætti að reka stóratvinnurekstur, en ekki, hvernig hann skyldi byggður upp, hvenær og af hverjum, þá mundi málið horfa öðruvísi við. En að vísu þarf ekki að deila um það, hvernig eigi að reka sumt af því, sem minnzt er á í till., t.d. brúa- og vegagerðir, hafnargerðir og lendingarbætur. Allt er þetta komið í fast kerfi. Um landbúnaðinn skal ég ekki segja. En það vakir e.t.v. fyrir flm. þessarar till. að koma þessu á samvinnugrundvöll, en ekki frjálsan grundvöll, því að það gengur eins og rauður þráður í gegnum alla till., að það ætti að koma öllum þessum málum á grundvöll samvinnurekstrar.

Má ég nú spyrja hv. flm. þessarar till., hvað hann á við með orðunum „stærri atvinnurekstrar“. Á hann við togaraveiðar, síldveiðar og frystihús o.s.frv., eða er átt við eitthvað annað og víðtækara? Ég veit ekki um neinn atvinnurekstur í landinu, sem er nú, eins og sakir standa, stærri en síldarútvegurinn, — síldarverksmiðjurnar, sem nú þegar eru reknar að miklu leyti af ríkinu og verið er að draga meira undir ríkið en þeir, sem trú hafa á frjálsum atvinnurekstri, telja hollt. Það er varla að tala um stóratvinnurekstur, þó að bændur búi stórbúi eða þó að menn hafi 20–30 menn í vinnu í smiðjum eða svoleiðis. Hv. flm. till. hlýtur því að eiga við stórútgerðina.

Þá vil ég spyrja hv. flm. till., hvaða álit hann hafi á ágæti samvinnunnar í stórútgerðarmálum. Samvinnustefnan í útgerð á Íslandi hefur liðið eitt hið stærsta skipbrot, sem liðið verður á nokkru sviði. Ég þarf ekki að rekja það nánar, en þar hefur samvinnurekstur algerlega liðið skipbrot, og það svo, að ég efast um, að nokkur sjómaður eða verkalýðsfélög yfirleitt samþykki, að sjávarútvegurinn sé rekinn á samvinnugrundvelli. Ef við svo förum yfir á svið verzlunar, þá er sama máli að gegna. Fleytunni er þar haldið á floti með skattfríðindum og þó sérstaklega fríðindum um innflutning, en aukið á erfiðleikana hjá öðrum innflytjendum að sama skapi. Það þarf ekki annað en vitna í kjötsöluna. Samvinnufélögin hafa nú með sérstökum fríðindum séð að mestu leyti um kjötverzlun landsmanna og hafa þó ekki getað boðið bændum betri kjör en frjáls verzlun, a.m.k. s.l. 25 ár. Þegar svo fríðindin eru tekin burtu, þá er samvinnufélagsverzlunin sokkin til botns.

Þessi dæmi, sem ég hef nefnt, eru síður en svo fallin til þess að hvetja menn til að styðja samvinnurekstur í stórum stíl, þegar afköstin eru ekki betri en hér hefur verið lýst. Hvað hug.,a þeir menn, sem vilja setja allan atvinnurekstur á samvinnugrundvöll? Hvar ætla þeir að taka þá skatta, sem nú eru látnir hvíla á frjálsum atvinnurekstri, eftir að búið er að leggja allt undir skattfrjáls samvinnufélög? Og ef sama skattabyrði á að hvíla á þeim og nú hvílir á frjálsum atvinnurekstri, þá get ég ekki hugsað mér, að útkoman verði glæsileg. Ég hefði talið það miklu eðlilegra að flokka verkefnin, sem þessi till. gerir ráð fyrir, að sett séu í mþn., þannig, að sjávarútvegsnefnd hefði farið með öll þau mál, er sérstaklega varða sjávarútveginn, og landbúnaðarmál væru þá sett í sérstaka n. En ég hef ekki trú á því, að slík mþn., sem hér er gert ráð fyrir, verði miklu afkastameiri en Rauðka var á sínum tíma. Ég vil aðeins benda á, að ef það á að fara að velja menn í n., þá þurfa þeir að hafa dýpri og margþættari skilning á þeim málum, sem n. á að fjalla um, en almennt vill verða, og ég efa, að hægt sé að finna menn, sem færir eru um að setja sig nógu vel inn í öll þessi mál í einu.

Þá hefur flm. bent á, að þessi n. ætti að gera till. um notkun fjár úr framkvæmdasjóði ríkisins. Það er víst búið að lofa svo miklu út á þennan sjóð, að það er ekki þörf á mþn. til að ráðstafa honum. Mér skilst það sé búið að lofa a.m.k. helmingi meira en gera þarf ráð fyrir, að komi í þann sjóð. Svo á n. líka að gera till. um tekjuöflunarleiðir. Við höfum nú fengið nýja stjórn, og ef dæma má af ræðum hæstv. fjmrh., þá mun hún finna einhverjar nýjar leiðir til tekjuöflunar og verður að líkindum búin að framkvæma þá tekjuöflun, áður en till. n. gætu komið til greina. Þá verður að öllum líkindum búið að taka svo mikið af tekjum landsmanna, að ekki verður miklu meira til að dreifa. Annars skal ég ekki vera með neina spádóma, en þetta lætur að líkum eftir ræðu hæstv. fjmrh. á dögunum.