08.01.1943
Sameinað þing: 14. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 64 í D-deild Alþingistíðinda. (3445)

38. mál, verkleg framkvæmd efitr styrjöldina og skipulag stóratvinnurekstrar

Stefán Jóh. Stefánsson:

Forseti. — Mér þykir rétt að minnast nokkrum orðum á þessa till., sem hér liggur fyrir. Það er engum vafa bundið að hér er brytt á merkilegu máli, sem snertir ekki svo mikið líðandi stund, heldur framtíðina, sem kynni að vera ekki svo langt undan. Það er svo, að í löndum, þar sem styrjöldin geisar, þar hefur fyrir löngu verið hafinn undirbúningur um framkvæmdir að stríðinu loknu. Forustumenn þjóðanna hafa það fyrir takmark sitt engu síður að vinna fyrir friðinn að heimsstyrjöldinni liðinni en að vinna stríðið. Það reyndist svo að fyrri heimsstyrjöldinni lokinni, að ýmsir erfiðleikar sköpuðust í löndunum, ekki bara þeim, sem átt höfðu í styrjöld, heldur einnig þeim, sem staðið höfðu utan við stríðið, og erfiðleikanna gætti þar kannske engu síður. Það kom til athugunar að loknu stríðinu 1914–1918, að þá þurftu stríðslöndin að taka við milljónum hermanna, og af heimkomu þeirra hlutust mestu vandræði, vegna þess að allt var svo óundirbúið. Nú erum við Íslendingar ekki stríðsaðilar og verðum að vona, að við komumst hjá því, en við getum lært af því, sem hent hefur aðrar þjóðir, og verið viðbúnir að taka á móti þeim erfiðleikum, sem gera má ráð fyrir, að mæti okkur að stríðinu loknu. Þegar stríðinu lýkur — og ef til vill fyrr — getur komið stórfelld röskun á atvinnulífið, vegna þess að fjöldi manna, sem haft hefur uppeldi sitt beint eða óbeint af stríðsaðgerðum hér á landi undanfarin ár, hverfur aftur til þeirra starfa, sem hann áður hafði framfærslu sína af, eða til annarra starfa, ef þau þá eru fyrir hendi. Þetta verðum við nú þegar að taka til athugunar.

Þá er engu síður ástæða til að benda á það, að vel mætti svo fara, að upp úr þessu stríði rísi nýtt tímabil, þar sem öðruvísi yrði háttað um stjórnar- og atvinnuhætti en áður. Fjöldi fólks, sem nú hefur verið leiddur á stríðsvöll, en áður bjó við skort og öryggisleysi, mun, eftir að það hefur lagt líf sitt í hættu og séð af sínum, ekki gera sig ánægt með að hverfa aftur til öryggisleysisins, til þess þjóðfélags, sem ekki býður því meira félagslegt öryggi en það átti áður við að búa. Það má vænta þess, að sú alda, sem ganga mun yfir heiminn að stríðinu loknu og nú þegar er tekin að stíga, muni ná til okkar Íslendinga sem annarra.

Í Bretlandi hefur nú verið sett á fót sérstök stjórnardeild, sem beinlinis hefur með höndum undirbúning verkefna að stríðinu loknu. Norska stjórnin í London hefur einnig skipað n., sem skipuð er sérstökum kunnáttumönnum og gera á ráðstafanir um uppbyggingu lands síns að stríðinu loknu og einnig athuga, á hvern hátt skuli komið á nýju og betra skipulagi en áður var.

Alþfl. hefur lengi verið ljóst, að nauðsynlegt er að gera ráðstafanir til þess að mæta nýjum viðfangsefnum að stríðinu loknu. Þess vegna var á síðasta Alþfl.þingi samþykkt ályktun, sem einnig var eitt atriðið í þeirri stefnuskrá, sem flokkurinn lagði fyrir þjóðina í síðustu kosningum. Ég leyfi mér, með leyfi hæstv. forseta, að lesa upp þá ályktun:

„Skipuð sé nefnd, er geri tillögur um nýskipun þjóðfélagsins til tryggingar öryggi og jöfnuði þegnanna og eflingar þeim stjórnarfars- og atvinnuháttum, er miða til almennrar hagsældar. Meðal annars sé rannsakað, hvernig haga skuli skipulagi byggðarinnar með sérstöku tilliti til þess, að í hverjum landshluta sé höfuðmiðstöð samgangna, verzlunar og iðnaðar og þá jafnframt aðalmarkaðsstaður landbúnaðarsvæða héraðsins. Nýbýla- og ræktunarlöggjöfin sé endurskoðuð frá rótum með tilliti til þessa byggðaskipulags og tryggt sem bezt, að landbúnaðurinn samræmist skipulaginu, verði rekinn með fullkominni tækni o.s.frv., og þannig samkeppnisfær við aðra atvinnuvegi. Í sambandi við þessa nýskipun séu því gefnar nánar gætur, hversu rata megi æskilegan meðalveg á milli óhjákvæmilegrar skipulagningar atvinnuveganna til tryggingar afkomu almennings og þeirrar ofstjórnar, er gangi of nærri persónulegu frelsi manna og sjálfsákvörðunarrétti. Í þessu skyni fylgist nefndin sem bezt með starfsemi hliðstæðra nefnda, sem skipaðar hafa verið erlendis.“

Ég bendi sérstaklega á niðurlag ályktunarinnar. Ég bendi á það vegna þess, að mér finnst rík ástæða fyrir þessa mþn., sem fyrirhuguð er samkv. þessari till., að fylgjast með og kynna sér þær till., sem nú koma fram víða erlendis um nýsköpun þjóðfélagsins og aukið öryggi. Það hafa orðið frægar um allan heim tillögur þær, sem kenndar eru við brezka stjórnmálamanninn Sir William Beveridge, er um langt skeið hefur unnið að því fyrir brezku stjórnina að gera tillögur um öryggi þjóðfélagsins. Hann hefur lagt fram ýtarlegar till., sem má vænta, að verði birtar almenningi hér á landi innan skamms tíma og lúta að alþjóðatryggingu að stríðinu loknu.

Ég vil því mæla með þessari till., sem hér er komin fram, þótt orðalag hennar sé kannske öðruvísi í einstökum atriðum en við Alþýðuflokksmenn hefðum kosið. En það skiptir ekki mestu máli. Tilgangurinn er aðalatriðið. Ég vildi sérstaklega undirstrika þau orð í grg., sem hljóða þannig: „En stranglega verður að gæta þess, að í þetta sinn fari ekki eins og stundum áður, að raunhæft starf kafni í skýrslusöfnun og skriffinnsku. Í n. og til starfa fyrir hana þurfa að veljast glöggir úrræðamenn, sem ekki hafa allt of margt í takinu á sama tíma.“ Þetta eru merkileg orð, og það þyrfti að velja aðstoðarmenn n. úr hópi sérfróðra manna. Ég álít ekki of miklu fórnað, þótt teknir væru á full laun nokkrir menn með sérþekkingu til þess að gera till. til n. Það vill oft verða svo með nefndastörf, að þau verða ekki eins affarasæl og skyldi, vegna þess að nm. hafa þau sem aukastörf, en hafa að öðru leyti mörgum og umfangsmiklum störfum að gegna, og verk n. segir til sín í samræmi við það. Ég tel, að í till. sé gripið inn í mál, sem Alþfl. álýtur mjög nauðsynlegt. En það verður vel að gæta þess að vanda val nm. og þeirra, sem eiga að aðstoða þá. Við megum ekki horfa í kostnað þann, sem kann að vera því samfara að velja færa aðstoðarmenn.

Ég geri ráð fyrir, að till. fari til n., og mætti þá athuga orðalag hennar betur. Svo er gjarnan, að till. eru mótaðar af flokki flm., en aðrir flokkar geta, er till. kemur til n., fundið grundvöll að flutningi málsins á þann hátt, að hún geti túlkað skoðun þeirra flokka, sem vilja standa saman um hana.