09.02.1943
Sameinað þing: 23. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 69 í D-deild Alþingistíðinda. (3449)
38. mál, verkleg framkvæmd efitr styrjöldina og skipulag stóratvinnurekstrar
Páll Zóphóníasson:
Herra forseti. — Í forföllum hv. þm. V.-Ísf. ætta ég að segja nokkur orð um þetta mál. N. hefur rætt þetta nokkuð á fundum sínum. Tilraun var gerð til þess að samræma þessa till., en það heppnaðist ekki. Þá tók n. til athugunar ýmis verkefni, sem koma til með að kalla að og knýja á á næstunni og verður vegna hagsmuna þjóðarinnar að taka sterkum tökum. Það er ákaflega hætt við, að það skipulag, sem nú er, kunni að breytast á ýmsa lund. Það hlýtur úð vera full þörf að athuga, hvernig þeim breytingum verður bezt á komið, sem þjóðin gengur út í eftir styrjöldina. Framtíðin ber ekki í skauti sér eins mikla möguleika fyrir einstaka menn til að safna óeðlilega miklum auði, og þarf nauðsynlega að athuga, hvað ber í að gera, til þess að allir geti búið við sem jöfnust kjör. Ég hygg, að fátt sé eins nauðsynlegt og að athuga, með afkomu heildarinnar í framtíðinni fyrir augum, hvaða form beri að hafa á stórrekstrinum að stríðinu loknu. Samhliða því er margt annað, sem þarf athugunar við. Framleiðsluvörur vorar eru allt of einhæfar, og þurfum við að hugsa til að gera þær bæði fjölbreyttar og útgengilegar.