09.02.1943
Sameinað þing: 23. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 70 í D-deild Alþingistíðinda. (3451)
38. mál, verkleg framkvæmd efitr styrjöldina og skipulag stóratvinnurekstrar
Stefán Jóh. Stefánsson:
Ég á brtt. á þskj. 350 við brtt. meiri hl. allshn. á þskj. 334. Efni till. minnar er auðskilið, og þarf ég því ekki að skýra það með langri ræðu. Till. fer fram á, að sú n., sem kosin verður í því skyni, sem í till. fer fram á, fylgist sem bezt með starfsemi hliðstæðra n., sem skinaðar hafa verið erlendis.
Eins og ég hef getið hér í umr. um þetta mál, þá tel ég eðlilegt, að slík n. sé skipuð, og gat þess, að slíkt væri ekkert einsdæmi, því að stjórnir erlendra ríkja hafa sett hliðstæðar n. til að athuga, hvað gera skuli að ófriðnum loknum, svo að nýjar hörmungar steðji ekki að þjóðunum, er hermennirnir koma heim af vígvöllunum. Brezka ríkisstj. og sumar útlagastjórnirnar í London hafa skipað slíkar nefndir eða falið deildum í ráðuneytum sínum þessi mál.
Það mundi ekki sízt að gagni koma fyrir okkur Íslendinga að athuga, hvað norska stjórnin í London gerir í þessum málum, því að atvinnuhættir norsku og íslenzku þjóðarinnar eru líkir.
Ég geri ekki ráð fyrir, að þessi brtt. mín sæti andmælum, og vona, að hv. þm. samþykki hana.