09.02.1943
Sameinað þing: 23. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 70 í D-deild Alþingistíðinda. (3453)

38. mál, verkleg framkvæmd efitr styrjöldina og skipulag stóratvinnurekstrar

Gísli Jónsson:

Ég vil aðeins mótmæla þeim umælum hv. þm. N.-Þ., að við flm. brtt. á þskj. 353 séum mótfallnir því, að fyrirtæki séu rekin með almenningshag fyrir augum. Við lítum einmitt þannig á, að fyrirtæki skuli rekin á þann hátt.

Eins og hv. 10. landsk. sagði, þá vakti það eitt fyrir okkur að færa till. í hlutlausan búning, en það virðist hafa mistekizt, og harma ég það mjög. Hv. flm. væri sæmra að þvo af till. allan flokkslit, því að það mun þjóðinni fyrir beztu.