03.03.1943
Neðri deild: 70. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 79 í D-deild Alþingistíðinda. (3464)
137. mál, verðuppbætur á útfluttar landbúnaðarvörur og afkoma iðnfyrirtækja
Sveinbjörn Högnason:
Hv. þm. Hafnf. virðist ekki mjög minnugur á hlutina, eða hann vill ekki muna þá. Hann telur sérstaklega standa á um þessa atvinnugrein, vegna þess að Alþ. hafi skapað það ástand, sem hún er í. En ég vil spyrja: Hefur Alþ. ekki líka átt nokkurn þátt í því að tvöfalda dýrtíðina, sem orðin er í landinu? Ég vil segja, að þessi þm. á sinn hlut í því. Í staðinn fyrir að vinna gegn því, að dýrtíðin héldi áfram að vaxa, þá gerðu menn sér leik að því að auka hana með ýmsu móti. Þeir sögðu, að hún mætti bíða og eiga sig. Og hún hefur tvöfaldazt fyrir aðgerðir meiri hl. Alþ. Þetta er hverjum manni vitanlegt. Þá sagði hv. þm. Hafnf. um fulltrúa bænda, að þeir hefðu kjörið sjálfa sig til þess að vera forsvarsmenn þeirra. Ég veit ekki, hvað hann á við. Hvaða sjálfkjörnir menn eru hér á þingi, eru þeir ekki allir kosnir af kjósendum landsins, hvort sem þeir eru fleiri eða færri, sem á bak við þá standa? Hann sagði, að 1939 hefðu þessir sjálfkjörnu menn staðið fyrir því, að bændur skárust úr leik um það, að kaupgjald og verðlag fylgdist að, og hafi það verið tekið úr l. fyrir atbeina þessara „sjálfkjörnu“ forustumanna. En það var samkomulag um verðlag landbúnaðarafurða. Man hann ekki, hvernig l. voru? Að sett var fast að hafa ekki dýrtíðaruppbótina að fullu. Og ef verðlag og kaupgjald áttu að fylgjast að, þá var óhugsandi annað en verðlagi á landbúnaðarafurðum yrði breytt, eftir því sem dýrtíðartilkostnaðurinn óx. En 1939 byrjar allur tilkostnaður við framleiðslu landbúnaðarafurða að stíga geysilega. Kolin hækka um 100%, benzínið um 50%, áburður og margt fleira hefur stigið gífurlega í verði. Og kaup bænda fyrir vinnu sina hefði orðið margfalt minna en hjá verkamönnum, ef það hefði verið látið standa fast og ekki mátt hreyfa það til. Hefði þá dýrtíðarþunginn í byrjun lagzt allur á bændastéttina, er vafamál, hvað verkamenn hefðu hagnazt á því, að landbúnaðurinn hefði gengið mjög saman og afurðir hans verið lítt fáanlegar á markaðinum, meðan styrjöldin stendur. Breytingin, sem gerð var á verði landbúnaðarafurða, fór sízt fram úr aukningu tilkostnaðar. Þetta ætti hv. þm. að hafa í minni. Það hefði verið hróplegasta ranglæti að halda afurðaverði landbúnaðarins föstu; á meðan tilkostnaður þaut upp ár öllu valdi. Þá hefðu verið sviknir samningar um, að kaupgjald og verð það, sem bændur fengju fyrir vörur, héldist í hendur. Þessu atriði í samningunum var ekki hægt að framfylgja, öðruvísi en að hreyfa verðið, til þess að mæta gífurlegri tilkostnaðaraukningu.