03.03.1943
Neðri deild: 70. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 79 í D-deild Alþingistíðinda. (3465)

137. mál, verðuppbætur á útfluttar landbúnaðarvörur og afkoma iðnfyrirtækja

Frsm. (Emil Jónsson):

Ekki þarf ég miklu að svara hv. þm. V.-Sk., enda er nú nokkuð komið út fyrir efni dagskrármálsins. En ég gat um þetta, sem ég sagði, að gefnu tilefni. Hv. þm. kvað það, sem er að gerast hjá ullarverksmiðjum og sútunarverksmiðjum, vera spegilmynd af íslenzkum atvinnuháttum. Það sé ekki hægt að reka nokkurn skapaðan hlut, vegna þess að kauplag sé svo hátt í landinu, að hvergi sé nein hliðstæða annars staðar í heiminum. (SvbH: Kauplag og verðlag, sagði ég). Hann gaf þar með í skyn, að það sé kaupgjald verkafólksins, sem orki til að skapa dýrtíðarflóðið, sem yfir rennur. Ég vil minna hv. þm. á, að 1939, þegar þessi dýrtíðaraldan var í uppsiglingu, þá hafði verið gert um það samkomulag, að kaupgjald verkafólks og afurðaverð landbúnaðar skyldi haldast í sömu hlutföllum. Báðir þessir aðilar höfðu komið sér saman um að taka ekki fulla hækkun á kaup sitt og vöru sína samkvæmt vísitölu, heldur láta skorta nokkuð á, og skyldi eitt yfir báða ganga. Haustið 1939 var þetta fellt úr gildi, að því er snerti landbúnaðinn, og þá var því ekki kennt um (hv. d. taki eftir því), sem þm. telur aðalatriðið í dag, heldur að tilkostnaður í kolum og benzíni hafi vaxið svo gífurlega, að þyrfti að hækka landbúnaðarafurðirnar, en ekki væri kaupgjaldinu um að kenna. Ég hefði haldið, að þessar vörur væru ekki svo mikill þáttur í framleiðslu flestra bænda, en kannske einhverra. Ég held, að það dugi ekki til að afsaka afurðaverðshækkunina, þvert ofan í gerða samninga. Ég er nú ekki að halda því fram, að bændur hafi fengið of mikið eða verkamenn, heldur hinu, að það var ekki vegna hækkandi kaupgjalds í landinu, sem hækkunin varð. Það voru kannske ekki bændurnir sjálfir, heldur þeir, sem höfðu kjörið sig til að vera forsvarsmenn bænda, sem völdu sér það hlutskipti að vera forsvarsmenn þeirra á Alþ. og annars staðar, sem stóðu að þessari hækkun, og þeir bera fyrst og fremst ábyrgð á dýrtíðarflóðinu. Og þá ábyrgð geta þeir aldrei við sig losað. Kaupgjaldið orkaði ekki á verðbólguna til að auka hana, það var bundið fyrir neðan það, sem vísitalan var áður. Þetta vil ég láta koma fram, þó að það tilheyri ekki beint þessu máli. Ég ætla, að þessum þm. og öðrum veitist erfitt að sanna, að það sé fyrst og fremst kaup verkafólksins, sem valdið hafi dýrtíðinni í landinu. Kauphækkun þess kom ávallt eftir á, löngu eftir að landbúnaðurinn hafði sett verðlagsskrúfu sína af stað, og ávallt eftir því, sem vísitalan sagði til.