07.01.1943
Efri deild: 26. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 510 í C-deild Alþingistíðinda. (3481)

88. mál, útflutningsgjald

Forsrh. (Björn Þórðarson):

Af því að hæstv. fjmrh. er hér ekki viðstaddur, leyfi ég mér að fara þess á leit við hv. d., að þessu máli verði vísað til 2. umr. og það verði athugað í n. og sú n. sæi sér fært að hraða afgreiðslu málsins eftir föngum, því að málið er í sjálfu sér mikilsvert eftir því sem sakir standa.

Flm. (Gísli Jónsson): Ég vil benda á það, sem hæstv. forsrh. sagði, að mál þetta er mikilsvert, og það er óskandi, að því sé flýtt. Og ég legg til, að það fari til fjhn.