11.01.1943
Efri deild: 28. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 513 í C-deild Alþingistíðinda. (3492)

98. mál, alþýðutryggingar

Flm. (Haraldur Guðmundsson):

Þeirri spurningu hv. þm. Barð., hvort ekki sé til þess ætlazt, að hinir tryggðu greiði nokkurn hluta af iðgjöldum til slysatrygginganna, verður að svara neitandi. Í grannlöndunum er það regla, að atvinnurekendur greiði þessi iðgjöld, og er litið svo á, að þetta fylgi áhættu þeirra. Maður leitar sér atvinnu í þessari starfsgreininni eða hinni án tillits til þess, hver áhætta fylgir starfinu, en hún er misjöfn. Iðgjaldagreiðslur eru líka misjafnar eftir áhættunni, og misjöfn áhætta hinna tryggðu er jöfnuð með misjafnri tryggingarupphæð.

Það er í raun og veru fyrirkomulagsatriði, hvort tryggingarnar eru að sumu leyti bornar uppi af hinum tryggðu og að sumu leyti af atvinnurekendum eða allt haft í einu lagi, eins og ég teldi að sumu leyti heppilegast. En ég tel óráð að hverfa frá því, að atvinnurekendur greiði þau iðgjöld, sem þeir greiða samkv. núgildandi l., á meðan fyrirkomulag þessara mála í heild er óbreytt frá því, sem nú er.