16.03.1943
Sameinað þing: 32. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 87 í D-deild Alþingistíðinda. (3543)

81. mál, landbúnaðarvélar

Flm. (Ingólfur Jónsson):

Herra forseti. — Till., sem við hv. 2. þm. Skagf. flytjum á þskj. 114, er fyrir nokkru flutt, þótt ekki hafi hún komið til umr. fyrr en í dag. Við viljum vekja athygli á nauðsyn þess að gera ráðstafanir í tíma til að útvega heyvinnuvélar til landsins fyrir n. k. sumar.

Það bar talsver t á því í sumar sem leið, hvaða skortur var á vélum til landbúnaðar, sérstaklega heyvinnuvélum, af því að gamlar vélar gengu úr sér og ekki var hægt að endurnýja þær. Það hefur sjálfsagt aldrei verið meiri þörf á landbúnaðarvélum en einmitt nú, þegar örðugleikarnir að fá fólk til vinnu fara sívaxandi. Hafa þeir aldrei verið meiri en á síðasta sumri og eiga e.t.v. eftir að verða meiri á sumri komanda.

Það má segja, að tilgangslaust sé að koma með slíka till. á Alþ. nú, því að það verði tæplega til þess, að flutt verði inn meira af vélum en ella hefði orðið, þar sem búið er að lýsa yfir, að innflutningsrúm sé svo mjög takmarkað. En ég held, að það þurfi að vekja athygli á nauðsyn þessa máls. Það ætti a.m.k. engu að spilla, þátt reynt væri að fá hæstv. ríkisstj. til að fá útflutningsleyfi fyrir slíkum vélum frá Bandaríkjunum. Ég veit, að þær voru þar til s.l. sumar, en þá. fékkst ekki útflutningsleyfi fyrir þeim, og það er því verkefni fyrir hæstv. ríkisstj. að skerast í leikinn og fá leyfðan útflutning á þessari nauðsynlegu vöru.

Ég tel ekki þörf lengri framsöguræðu, en óska þess, að Alþingi samþ. till. og láti hana fara rétta boðleið til ríkisstj.