12.02.1943
Sameinað þing: 25. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 89 í D-deild Alþingistíðinda. (3564)

135. mál, launabætur embættismanna og annarra starfsmanna ríkisins

Skúli Guðmundsson:

Herra forseti. — Hæstv. fjmrh. sagði, að með þessari till. til þál. væri leitað heimildar til þess að greiða uppbætur á laun embættismanna og annarra opinberra starfsmanna ríkisins, en ég vil vekja athygli á því, ef þessi till. verður samþ., þá er hér ekki um heimild að ræða, heldur skipun, sem sé, að ríkisstj. er gert að skyldu að greiða þessar uppbætur. Eins og hæstv. ráðh. sagði, þá er þessi till. shlj. þáltill., sem samþ. var á síðasta Alþ., og nú er farið fram á, að þessar launabætur framlengist til ársloka 1943.

Í upphafi aukaþingsins sumarið 1942 komu fram tvö frv. um að greiða uppbætur til opinberra starfsmanna. Síðan fluttu fjórir hv. þm. till. til þál. um þessar launabætur, sem var samþ., en frv. tvö voru ekki afgr. — Eftir að sú till. kom fram, fluttum við fjórir þm. á sumarþinginu till. til þál. um að greiða verðuppbætur á útfluttar landbúnaðarafurðir, þannig að framleiðendur þeirra fengju hliðstæðar hækkanir á sínar tekjur og opinberir starfsmenn og aðrir launþegar. Við töldum þetta óhjákvæmilegt til þess að færa tekjur þeirra, er framleiða þessar vörur, til nokkurs samræmis við tekjur launamanna. Till. okkar var samþ. Hún hefur oft undanfarið verið gerð að umtalsefni, og sumir hafa haldið því fram, að þessa till. hefði ekki átt að samþykkja. Ummæli hafa fallið um það, að með þessu væri bændastéttin gerð að styrkþegum, og orðið ölmusumaður hefur verið nefnt í því sambandi. Talað er um, að uppbæturnar muni nema yfir 20 millj. kr. og að því fé sé illa varið.

Ég vil nú fara nokkrum orðum um, hvers eðlis þessar greiðslur eru. Það er alkunnugt, að af völdum ófriðarins lokuðust erlendir markaðir fyrir ýmsar framleiðsluvörur landbúnaðarins, t.d. ull og gærur, sem áður, fyrir stríð, hafði reynzt auðvelt að selja.

Ég tel því, að það hafi verið óhjákvæmilegt að bæta framleiðendum það tjón, sem þeir urðu fyrir af þessum sökum. Í sambandi við þetta vil ég vekja athygli á því, að enn hefur ekki verið greiddur einn eyrir af þessum væntanlegu uppbótum á landbúnaðarafurðir síðast liðins árs. Ég geri ráð fyrir, að ýmsum stéttum þjóðfélagsins, öðrum en bændum, þætti langt að bíða eftir verðuppbótum, ef ekki væri farið að borga þeim þær enn fyrir síðast liðið ár.

Eins og ég gat um áðan, hefur verið rætt um þessar uppbætur landbúnaðarins, m.a. í ýmsum blöðum. Í dagblaði hér í bænum sá ég fyrir tveimur dögum kastað fram þeirri spurningu, hvað orðið hefði af þessum milljónum, hvort þær hefðu lent hjá kaupfélögunum víðs vegar um landið, eða hvað. — Þannig er tónninn í senn óviðeigandi og lýsir mikilli fáfræði. Út af þessu get ég sagt það, að bæði Samband ísl. samvinnufélaga, kaupfélög og ég geri ráð fyrir ýmsar einstaklingsverzlanir hafa tekið fé að láni til þess að geta greitt bændum hluta af bessum uppbótum, því að ekki væru þeir búnir að fá neitt, þar sem, eins og áður var sagt, ekki hefur enn bólað á neinum greiðslum frá ríkissjóði.

Ég vil nú spyrja: Er sæmilegt að tala um styrkþega og ölmusulýð í sambandi við þetta mál? Fer þetta fé til manna, sem ekkert vinna? Getur nokkur haldið slíku fram? Ég fullyrði, að slíkt er ekki hægt. Hitt mun sönnu nær, að fáir leggi sig betur fram við gagnleg störf. Bændur og annað fólk, sem vinnur við landbúnaðinn, framleiðir ár hvert mjólk, sem nemur tugum millj. lítra, nokkur millj. kg. af kindakjöti og fleira, sem landsmenn þarfnast sér til lífsviðurværis. Hvernig væri þjóðin stödd, ef hún hefði ekki þessar neyzluvörur? Ég tel, að það yrði erfitt að fá það bætt með innfluttum varningi, ef landbúnaðarframleiðsla drægist stórkostlega saman, og mig grunar, að ýmsir þeir menn, sem tala um bændur sem ölmusumenn, væru þynnri á vangann, ef þeir fengju ekki þessi innlendu matvæli. — Mér finnst óviðkunnanlegt að tala um ölmusur, þó að þessi stétt þjóðfélagsins fái nokkurn stuðning úr sameiginlegum sjóði landsmanna, þegar styrjöldin lokar mörkuðum fyrir sumar helztu framleiðsluvörur hennar. Með sama rétti mætti nefna embættismenn og aðra starfsmenn ríkisins styrkþega, vegna þess að þeim eru ætlaðar milli 10 og 20 millj. kr. á þessu ári í verðlagsuppbætur og aukauppbætur á laun, vegna aukinnar dýrtíðar. Menn ættu að spara sér slík ummæli um einstakar stéttir þjóðfélagsins, sem vinna þýðingarmikil störf fyrir þjóðarheildina. Svigurmælin geta hitt þá sjálfa, sem nota þau.

Þegar rætt er um þessa þáltill., sem hér er til umr., þá hlýtur að vakna sú spurning, hvort kjör þeirra starfsmanna, sem eiga að njóta uppbóta samkv. till., muni, að fengnum þessum uppbótum, verða í eðlilegu samræmi við tekjur annarra landsmanna. Það er lagt til, að embættismenn og opinberir starfsmenn haldi sinni aukauppbót til næstu áramóta. Þetta kostar mikið fé, og það kostar meira en það, sem ríkissjóður greiðir, því að öll einkafyrirtæki í landinu verða að greiða sams konar launabætur starfsmönnum sínum. Öll verzlunarfyrirtæki í landinu þyrftu að greiða þetta, og slíkt hefur áhrif til hækkunar á vöruverðið í landinu.

Það er mjög vafasamt, að tekjur framleiðenda haldist í líku horfi þetta ár á enda. Óvíst er um sölu og verð sjávarafurða síðari hluta ársins og enn vafasamara um landbúnaðarvörurnar. Má raunar telja víst, að tekjur bænda geti því aðeins haldizt lítið breyttar, að ríkissjóður greiði uppbætur á útflutningsvörur þeirra einnig á þessu ári. En er það framkvæmanlegt? Hefur ríkissjóður fé til þess? Og ætlar hæstv. ríkisstj. að leggja til, að svo verði gert, eða telur hún ekki nauðsynlegt að tryggja afkomu annarra stétta um leið og ákveðið er, að framvegis skuli greiða aukauppbæturnar til opinberra starfsmanna?

Hvað er svo um verkamannastéttina? Tekjur þeirrar stéttar hafa verið allmiklar, en það stafar að verulegu leyti af því, hve eftirvinna hefur verið mikil, og engin trygging er fyrir því, að þessi mikla atvinna haldist eins og verið hefur. Það er jafnvel sagt, að nú sé farið að bera á atvinnuleysi í Rvík og víðar. Ef eitthvað þrengist um atvinnu, hlýtur eftirvinnan að hverfa fyrst, og það veldur mikilli tekjurýrnun hjá verkamönnum. Mér finnst allmikill vafi á, að tekjur verkamanna haldist óbreyttar þetta ár á enda. Ef aðalatvinnuvegirnir verða fyrir einhverjum erfiðleikum, hlýtur það að nokkru leyti að bitna á verkamönnum í minnkandi atvinnu.

Nú er mikið um það rætt að lækka dýrtíðina, en lítið hefur enn orðið um framkvæmdir í því efni, enda erfiðara að stöðva dýrtíðarflóðið nú en ef fyrr hefði verið reynt að stöðva vöxt þess. En það verður engin lagfæring í þeim efnum, án þess að landsmenn fórni einhverju í því sambandi. Slíkra fórna er ekki hægt að krefjast af einstökum stéttum en undanskilja aðrar. Allir verða að bera sinn skerf, starfsmenn ríkisins sem aðrir.

Ríkisstj. hefur talið sig vilja vinna bug á dýrtíðinni. Till. hennar í þá átt eru ókomnar, en þessi þáltill. hæstv. stj. er sízt af öllu spor í þá átt. Hún er miklu frekar bending um það, að sú óheillavænlega þróun í verðlags- og kaupgjaldsmálum, sem varð á s.l. ári, eigi að halda áfram. Slíkt getur ekki talizt heppilegt. Vill hæstv. stj. stefna áfram á þeirri braut? Ég vil spyrja hæstv. ríkisstj. eða hæstv. fjmrh.: Er ríkisstj. hætt við þær fyrirætlanir sínar að reyna að minnka dýrtíðina, eða telur ríkisstj., að þetta verði gert, án þess að krafizt verði einhverra fórna af hálfu landsmanna, þ. á m. starfsmanna ríkisins? Telur ríkisstj., að hægt sé að gera eitthvað að gagni í þá átt, en láta um leið allar stéttir halda sömu tekjum og áður? Telur hún víst, að framleiðendur og verkamenn hafi jafnmiklar tekjur á þessu ári og síðast liðið ár og því sé rétt að láta opinbera starfsmenn halda launabótum sínum út þetta ár? — Mér finnst hæpið að gera nú þegar samþykkt um það, að fastlaunamenn haldi tekjum sínum óskertum, þegar allt er í óvissu um afkomu hinna.

Ég vænti þess, að hæstv. ríkisstj. svari þessu að einhverju, áður en málið fer til síðari umr., og ég mun e.t.v. bera fram brtt. við till., ef mér finnst ástæða til.