12.02.1943
Sameinað þing: 25. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 100 í D-deild Alþingistíðinda. (3571)

135. mál, launabætur embættismanna og annarra starfsmanna ríkisins

Fjmrh. (Björn Ólafsson):

Herra forseti. — Hv. þm. V.-Húnv. hefur borið fram allmargar spurningar til mín, en ég verð að segja, að mér finnst ekki beint sanngjarnt af honum að bera fram svo margar fyrirspurnir sem hann hefur gert að mér óvörum. Ég vænti því, að hann telji ekki ótilhlýðilegt, þó að ég taki mér nokkurn frest til að svara því, sem um er spurt.